Goðasteinn - 01.09.1966, Page 35

Goðasteinn - 01.09.1966, Page 35
Oddgeir Guðjónsson í Tungu: Tröllaskógur Sandgilja er horfin í hraun og sand. Skógsalda er bert og blásið land. Ó, Tröllaskógur, þú verst í vök, váleg hraunelfa að þér brunar. Stórviðið nötrar við stormsins tök, straumþung áin í fjarska dunar. Eldtungur sleikja Öldugrjót, æðandi logar skóginn brenna, allur er svörðurinn sviðinn í rót, sandar og vikur að húsum fenna. Ógn er í lofti hvert andartak, ægir bóndanum svartur bruninn. Tröllaskógur er brotinn á bak, bærinn í rúst og kirkjan hrunin. Hver vill græða þau svöðusár sanda og auðnar, sem þar má líta, rækta, svo skógur þar rísi hár, reisa merki Kristi’ inum hvíta? EFTIRMÁLI Síðla sumars, 1964, kom ég í Tröllaskóg, hið forna býli og kirkju- stað, norðaustur frá Keldum á Rangárvöllum. Jörð þessi hefur verið landmikil til forna og skógur þar stærri en á öðrum jörðum Goðasteinn 33

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.