Goðasteinn - 01.09.1966, Page 43

Goðasteinn - 01.09.1966, Page 43
Hjalti Jónsson í Hólum: Jón salti Jón hét maður, Árnason, kallaður „salti“. Hann átti heima á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu á 19. öldinni, en hvort hann var þar upprunninn, veit ég ekki með vissu. Jón bjó á Viðborði, í Hvömmunum, sem nefnt var. Er það býli nú í eyði. Bærinn stóð undir klettunum fyrir ofan og vestan Við- borðsbæinn, sem nú er einnig í eyði. Auknefnið „salti“ var sagt, að Jón hefði fengið fyrir það, að hann hcfði einhvern tíma orðið sér úti um saltkút, sennilega þá fundið hann á fjöru af strandaðri fiskiskútu (duggu). Jón þóttist vera skáld og orti óspart vísur um vini sína og kunn- ingja. Voru það jafnan ferhendur en órímaðar, líktust að því leyti skáldskap leirbullaranna nú á dögum. En þær höfðu það fram yfir nýtízku leirburðinn, að menn lærðu þær og þær lifðu á vörum manna. Þegar ég man fyrst, var oft hlegið dátt, þegar menn kváðu þær. Ég man nokkuð af þessum vísum, sem ég lærði ósjálfrátt á unglingsárunum, og þær hafa einhvern veginn tollað í minni mínu til þessa. Flestar munu þær vera í Skaftfellskum þjóðsögum, sem Guðmundur Jónsson í Hoffelli, bróðir minn, safnaði og út komu á Akureyri 1941, en þar eru margar þeirra afbakaðar og máttu þó varla við því. En það er svo með þá bók, að mikil óvandvirkni virðist hafa átt sér stað við prentun hennar, svo þar úir og grúir af villum, sem ekki voru í handritinu. Þá hefst hér skáldskapur Jóns salta með tveimur stökum um séra Þorstein Þórarinsson í Berufirði og konu hans, Sigríði Péturs- dóttur: Goðasteinn 41

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.