Goðasteinn - 01.03.1967, Síða 44
vini og vandamenn. Aðalbyggðin á Akureyri er á eyri, vestan við
botninn á Eyjafirði. Þar sem eyrin skagar lengst út í sjóinn, og þá
um leið breiðust, heitir Oddeyri. Þar er byggðin þéttust, en aðal-
gata bæjarins er þaðan suður með fjarðarbotninum, með þéttri
húsaröð báðum megin, en að baki brött brekka, til hægri handar,
þegar suður er gengið. Brekkan má heita alsett kartöflum og talið
hálft líf bæjarbúa.
Trjá- og blómagarðar eru við mörg húsin. Gróðurinn í þeim
cr ekki sambærilegur við sunnlenzkan trjágróður, mörg 15-18 ára
tré orðin 8-9 álnir á hæð, birki og reynir. Hæsta grenitréð, er ég sá,
tók mér í öxl. Gatan er vcl hirt og mörg húsin mjög snotur. Sunn-
arlega í götunni er kirkjan. Sunnan undir henni er stór og einkar
fallegur skrautgarður með trjám og blómum. Kirkjan er timbur-
kirkja, að vísu nokkuð stór en eitthvað ókirkjuleg og samsvarar
iila flestu öðru á Akureyri. Altaristaflan svarar víst ekki betur
stað og tíma cn Klofaaltaristaflan gamla gerði í Klofakirkju. Og
aldrei hef ég séð eins ljótt altarisklæði. Það hefir upphaflega verið
úr brúnu flaueli, en nú var það allt gráskjöldótt. Hvort það voru
mjólkur- eða myglublettir eða eitthvað annað gætti ég ekki að en
sagði við Hallgrím: „Af hverju hafið þið þetta hérna“? En í
kirkjunni er mjög dýr og og vandaður ljósahjálmur, úr skíru silfri
að sjá og með tólf kertastæðum, allur útgrafinn, cn ég gat ekki
lesið fyrir fjarlægð, nema ártalið 1688. Þykir mér líklegt, að hjálm-
urinn sé minningargjöf, eða þessháttar, cn sá hefir ekki skorið við
neglur sér, sem lét af hendi.
Syðst við götuna er Gróðrarstöðin. Er sama um hana að segja
og aðra trjá- og blómagarða Akureyrar. Nú förum við upp í
brekkuna. Þar verður fyrst fyrir okkur kirkjugarðurinn, illa girtur
og hirtur, eins og hjá okkur, en endur- og umbót mun vera í aðsigi.
Skammt norðar er stærsta skólahús landsins: Gagnfræðaskólinn á
Akureyri, sem illu heilli var fluttur þangað frá Möðruvöllum. Sunn-
an undir skólanum er stórt svæði afgirt og vel hirt, er á að verða
lystigarður bæjarins. Trjágróður er þar ungur en fer mjög vcl að,
og eru menn farnir að flytja þangað stóla, svo hægt sé í tómstund-
um að sitja þar í skjóli bjarkarinnar. í garðinum er brjóstlíkneski
42
Goðasteinn