Goðasteinn - 01.03.1967, Qupperneq 65
Magnús Jónasson frá Hólmahjáleigu:
Kímnisögur
Þórður Brynjólfsson bjó á Bakka í Austur-Landeyjum fyrir alda-
mót og fram til 1905. Hann var faðir Lofts, sem síðan bjó lengi á
Bakka, giftur Kristínu Sigurðardóttur ljósmóður. Var Þórður hjá
þeim síðustu æviárin.
Þórður var bráðskýr og gamansamur í tilsvörum og hafði mikið
yndi af því að koma öðrum til að hlæja. Kímnin hjá Þórði hitt oft
svo vel í mark, hjálpaðist þar að orðalag, rómur og svipbrigði, sem
gátu orðið kátbrosleg.
Vinnustúlka var á Bakka um tíma, hjá Lofti og Kristínu. Hún var
kunnug fólkinu á Tjörnum. Milli Bakka og Tjarna er vatnsfall, sem
nefnist Álar. Þeir voru oft illir yfirferðar, áður en hlaðið var fyrir
vötnin, Ála, Affall og Þverá, sérstaklega þó í leysingum á vorin.
Stúlkan á Bakka kom einu sinni inn í góðu veðri um vorið og
segir við Kristínu húsmóður sína: „Kristín! Mig langar að fara
eitthvað, þegar veðrið er svona gott, má ég fara að Tjörnum í dag,
til að hitta fólkið þar. Það er svo langt síðan ég hef komið þar,
ekki í allan vetur“. Kristín svaraði: „Það er ekki hægt fyrir þig
að fara núna, væna mín, það er svo mikið í Álunurn". Stúlkan hélt,
að sér væri fært yfir þá. Þá sagði Kristín: „Þú ferð ekkert í dag, þú
færð að fara seinna í vor. Þú gætir bara drukknað í Álunum, ef þú
færir núna, og enginn til að fara með þér“. Þá gekk stúlkan út,
ósköp döpur og undirleit, hitti Þórð úti á stétt og sagði við hann:
„Þórður! Er hægt að drukkna í Álunum“? Þórður svaraði að bragðir
„Ég veit það ekki, ég hef aldrei reynt það“.
Þeir Bakkabændur, Þórður og Loftur, áttu alltaf ágætis hesta.
Einu sinni sem oftar var Þórður á ferðalagi og reið hesti, sem var
léttur að hlaupa. Kom þá maður ríðandi á eftir honum, úr annarri
Godasteinn
65