Goðasteinn - 01.09.1968, Side 75
Sigurður Björnsson d Kvískerjum:
Neistinn sem olli bálinu
í fyrsta hefti 6. árg. Goðasteins er grein eftir mig um Svínfell-
inga sögu, og er efni hennar að færa rök fyrir því, að Þorsteinn
Skeggjason hafi samið hana.
Engin tilraun var þar gjörð til þess að skýra alla þá heift, sem
Svínfellinga saga segir frá, en ástæðan fyrir henni kemur varla
skýrt fram þar og mun því hafa verið mörgum ráðgáta; það sem
missætti þeirra Sæmundar og Ögmundar virðist rísa af, getur
varla hafa valdið slíkri heift. Þó er í þriðja kafla sögunnar ein
setning, sem ég ætla, að geti skýrt þetta. Þessi setning er svo-
hljóðandi:
„Þat segja sumir menn, at Ögmundr Helgason tæki Ormi blóð
þar á þinginu á gjósæðinni og síðan felldi sóttina at honum“.
Eflaust hefur þetta verið slúðursaga og hefir ekki verið sögð
í eyra Ögmundar, en hætt er við, að ekki hafi verið gætilega
með hana farið í áheyrn Sæmundar. Hvort þau Brandur ábóti og
Álfheiður í Svínafclli hafa heyrt hana, skal ósagt látið, en víst
er, að þau hafa ekki talið Ögmund valdan að dauða Orms. En
hafi Sæmundur heyrt þessa sögu, sem varla fer hjá, virðist eðli-
legt, að hann hefði talið, að Ögmundur hefði með þessu orðið
föðurbani hans, og þessi grunur verður að vissu, þegar Ögmund-
ur vill ekki gefa eftir völdin í hcndur Sæmundi, þegar hann, lög-
um samkvæmt, átti að taka við goðorði föður síns, sem Ögmund-
ur hafði farið með frá dauða Orms. Sæmundi hefur þó verið vel
ljóst, að hann gat ekki reist málssök á hendur Ögmundi vegna
þessarar sögu, en hann grípur fyrsta tækifæri til að klekkja á hon-
um og sýnir enga vægð.
Goðasteinn
73