Goðasteinn - 01.03.1972, Blaðsíða 18
ad neitt um, hvort afkomendur Þorgríms Skrauta hafa búið þar
áfram eða ekki.
Jón Loftsson í Odda á Rangárvöllum eignaðist Höfðabrekku
laust fyrir 1179 svo sem sjá má af Þorláks sögu helga, en þar
segir: ,,! þann tíma hafði Jón komizt að Höfðabrekkulandi, er
citthvert þótti bezt vera, áður en Höfðá spillti.“ Við kirkjuvígslu
á Höfðabrekku gerðust þau þáttaskil í staðamálum Þorláks
biskups, sem alkunn eru. Sagan segir, að útsynningsstormur hafi
brotið tvær kirkjur á Höfðabrekku en Jón „þar gera látið nýja
kirkju og mjög vandaða að smíð“. Þorlákur biskup kom til kirkju-
vígslunnar úr Austfjarðarvisitazíu 1179.
Það sést af Fellsmúlabréfi, gjörðu í Fellsmúla á Landi 22. febr.
1375, að eignaskipti verða á Höfðabrekku og Kerlingardal og
Fellsmúla á Landi. Um gildi bréfsins hefur verið deilt. Sumt,
scm þar stendur, kemur vel hcim við Höfðabrekkumáldaga frá
1340 og annað við Fellsmúlamáldaga 1371 og Oddamáldaga 1270,
og er því sennilegt að bréfið sé ófalsað. Þórður Kolbeinsson, lík-
lega Þórðarsonar, Kolbeinssonar Auðkýlings, selur samkv. bréf-
inu Höfðabrekku og Kerlingardal, Ólafi Þorsteinssvni, lögmanni
Eyjólfssonar, fyrir Fellsmúla og mikið lausafé.
Eigi er ósennilegt, að Höfðabrekka hafi komizt í eigu Auð-
kýlinga með seinni konu Kolbeins jarls, er var af Oddaverjaæt.:.
Ölafur Þorsteinsson er talinn hafa búið á Höfðabrckku, og hafa
tekið við af Þórði Kolbeinssyni. Ölafur drukknaði 1380. Hann
var bróðir Sólveigar konu Björns Jórsalafara. Hallur var sonur
Ölafs Þorsteinssonar, þeir feðgar voru mikilsháttar menn og komu
víða við bréf fyrir norðan, Það verður að telja rnjög líklegt, að
Hallur hafi búið á Höfðabrekku eftir föður sinn, og Þorsteinn
sonur hans eftir hann, þótt eigi sé unnt að segja það fyrir víst.
Dóttir Þorsteins Hallssonar var Sesselja, en hennar fékk Einar
Ormsson, Loftssonar hins ríka, er síðar bjó á Stórólfshvoli. Seinni
maður Sesselju (um 1471) var Hallsteinn Þorsteinsson frá Stórholti
í Fljótum, dóttursonur Árna Dalskeggs. Áðurnefndur Hallsteinn
og Eyjólfur lögmaður voru systkinasynir. Eyjólfur Einarsson lög-
maður, forfaðir Dalverja- eða Höfðabrekkuættar, var af norð-
lenzkri auðmanna, höfðingja- og goðorðsmannaætt, því að lög-
16
Godasteim?