Goðasteinn - 01.03.1972, Side 51

Goðasteinn - 01.03.1972, Side 51
kunni því vel að meta Jón, sem þá hafði það til að kasta fram stökum. Þær eru því miður flestar gleymdar. Heimildarmaður að þessu er Þorsteinn Erlendsson sonur Katrínar. Það var heimilissiður hjá foreldrum mínum að lesa húslestur á hverju kveldi allan veturinn, og las faðir minn hann oftast. Ef næturgestur var, sem oft kom fyrir, þá var honum oft boðið eða hann beðinn að lesa lesturinn. Þótti það virðingarmerki við gest- inn. Sumir færðust undan því en aðrir tóku því vel. Svo var það þá cinu sinni heima, að næturgestur var að lesa lesturinn. Borgar- heitið Kapernaum kom fyrir í honum, en maðurinn komst ekki fram úr því, og eftir nokkrar tilraunir, breytti hann því og nefndi borgina Kastalann. Lauk hann svo lestrinum án fleiri örðugleika. Daginn eftir, þegar gesturinn var farinn, kom Jón til móður minnar og sagði: „Illa beit á Kastalann hjá N. N. í gærkveldi" og glotti við. Svona átti hann til að vera neyðarlegur. Jón Hreiðarsson var fróðleiksfús og vildi vita allt sem réttast, enda getur Guðmundur Árnason hans í bókinni Sandgræðslan, er út kom 1958, á bls. 52 á þá leið, að Jón hafi verið alþekktur að sannsögli og góðu minni. Einu sinni vorum við bræður að lesa úr ljóðabók Kristjáns Jónssonar og lásum ljóðið: „Ekki er allt, sem sýnist. Rís Jón þá upp og segir: „Er þetta rétt lesið hjá ykkur, drengir?“ Við sögð- umst ekki geta lesið það öðruvísi, en það voru síðustu ljóðlínur kvæðisins: „Lífið allt er blóðrás og logandi und, sem læknast ekki fyrr en á aldurtilastund." Fer Jón til móður minnar og spyr, hvort rétt sé lesið. Hún kvað svo vera. „Þá hætti ég að rengja“, segir Jón, ,,en ég skil ekki þetta orð: aldurtilastund, það hlýtur að vera einhver ný skáldakenning." Ekki var Jón ánægður þótt rétt væri lesið, spyr hann þá, sem hann hélt, að gætu gefið upplýsingar, sóknarprestinn og fleiri, en fékk ekki þau svör, sem hann var ánægður með, en svo kom sr. Valdimar Briem um sumarið næsta á eftir. Spyr Jón hann fljótlega um þýðingu orðsins. Prestur svaraði honum, að aldurtili merkti endi lífsskeiðs hjá hverjum og einum. Þetta var Jón ánægður með, enda ræddu þeir sr. Valdimar og hann lengi saman um fornar bókmenntir, eldri skáldin o. fl. Goðasteinn 49

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.