Goðasteinn - 01.03.1972, Blaðsíða 80
d. Jón Auðunsson, barst fyrst vestur í Borgarfjörð með systur
sinni og mági og þaðan vestur að Isafjarðardjúpi með föðu'--
bróður sínum, Arnóri, sem verið hafði prestur að Hesti í Borg-
arfirði en nú fékk Vatnsfjörð. Jón varð síðar bóndi á Eyri við
ísafjarðardjúp. Frá honum er komin Auðunsætt og margra fleiri.
e. Þóra Auðunsdóttir, var seinni kona sr. Þórðar Árnasonar að
Mosfelli.
f. Sigríður Auðunsdóttir, átti Einar ísleifsson á Seljalandi, Eyja-
fjöllum.
g. Steinunn Auðunsdóttir, (fædd eftir lát föður síns 27. des. 1817}
átti Jón Þórðarson í Eyvindarmúla í Fljótshlíð.
Ekkja séra Auðuns, Sigríður, átti síðar (31. maí 1822) Bergstein
Guttormsson að Hlíðarenda. Heimild, Isl. æviskrár o. fl.
III.
Næsta stórslys við Rangá verður 1. apríl (?) 1824, er tveir
bændur, Þorgils Magnússon í Bjóluhjáleigu og Jón Jónsson bóndi
á Hofi á Rangárvöllum drukkna í Rangá fyrir neðan Bjólu. Þriðji
maðurinn, Steinn Guðmundsson í Vetleifsholti, bjargaðist fyrir
það, að vettlingar hans frusu fastir á skörinni, og gat Steinn
vegið sig upp á því að halda í þá.
Hcstar þeirra fóru undir skörina. Mcnnirnir voru að koma frá
jarðarför í Odda; vantar mig Kirkjubók Odda frá þeim tíma til
að sjá hver var jarðaður þar þennan dag og ár. Það hcvrði ég
sagt að þeir Þorgils og Jón mundu hafa ætlað að ráðstafa eign
Halldórs í Bjóluhjáleigu, er úti hafði orðið á Háfsmelum fyrr
um veturinn.
Þorgils í Bjóluhjáleigu var fæddur 1775, Magnússon bónda í
Tungu á Rangárvöllum, Þorgilssonar frá Reynifelli.
Hcimildarmaður minn að nokkru leyti Öskar Einarsson læknir
frá Bjólu.
I Sagnaþáttum Guðna Jónssonar, V. h. er sagt frá drukknun
tveggja manna í Rangá ofanverðri snemma á 19. öld, auk séra
Auðuns, sem áður getur. Öfeigur Jónsson bóndi á Leirubakka
drukknaði í Rangá hjá svonefndum Ossateig, var að koma austan
frá Selssundi. Það skeði á jóladag 1843.
78
Godasteuri