Goðasteinn - 01.03.1972, Blaðsíða 26
eigendur hefðu upp á kirkjuna og garðinn kostað". Jón biskup
Árnason í Skálholti bjargaði þessu máii „því að svo mikils mat
hann við Höfðabrekkubændur hversu vel og heiðarlega þeim hafði
farizt við kirkju sína og hana byggt alveg að nýju, eftir að hún
fórst í hlaupinu 1660 og til hennar keypt skrúða og sérhvað, er
hún þurfti og ekkert þar fyrir uppborið.“ Lét biskup Runólf vera
kvittan fyrir viðhaldskostnaði kirkjunnar, skyldi hér eftir eigi fylgja
jörðinni nema 5 og hálft kúgildi, en presturinn skyldi þá árlega
fá ellefu fjórðunga smjörs. 1743 var jörðin sett niður úr 40 hndr.
í 25 hndr.
Jón Runólfsson lögréttumaður var síðasti ábúandinn á Höfða-
brekku af Dalverja- cða Höfðabrekkuættinni. Hann var bróðir
Guðmundar Runólfssonar sýslumanns í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu.
Séra Jón Steingrímsson segir í ævisögu sinni um nafna sinn á
Höfðabrekku, „að hann hafi verið tryggur maður og trúfastur“.
Sonum hans kenndi séra Jón undir skóla. Varð séra Jón Jónsson,
Runólfssonar, tengdasonur séra Jóns Steingrímssonar. Bræðurnir,
er báðir urðu prestar, seidu jörðina úr ætt.
Enn hafði Höfðabrekka orðið fyrir miklu áfalli af Kötlugosinu
1755, tók þá af allar graslendisbrekkurnar neðan undir Höfða-
brekkufjalli.
Höfðabrekka rétti sig til muna við aftur og ætíð mun hún
talin vildisjörð, þrátt fyrir afföllin miklu og kemur þar margt til.
Víðáttumikil afréttarlönd, Höfðabrekkuafréttur, fylgdu jörðinni,
einnig stór rekafjara og fuglatekja í Höfðabrekkufjalli. Samkvæmt
jarðamati 1922 er landverð jarðarinnar 82 hundruð.
Tala seinni ábúenda verður eigi rakin hér. Á Höfðabrekku hafa
jafnan búið merkir menn, athafnasamir og verið stoð sveitar
sinnar og er svo enn. Þar hafa búið umboðsmenn og sýslumenn.
Á Höfðabrekku bjó Magnús sýslumaður faðir Magnúsar Stephen-
sen landshöfðingja, er þar var fæddur. Einnig bjó þar Kristján
Kristjánsson síðar amtmaður, meðan hann var sýslumaður Skapt-
fellinga. Fleiri sýslumenn hafa búið þar. Á Höfðabrekku er Einar
Ólafur Svcinsson prófessor fæddur.
Eyjólfi Guðmundssyni, bónda og rithöfundi á Hvoli í Mýrdal,
24
Goðaste'vvi