Goðasteinn - 01.03.1972, Qupperneq 33
Pálmar Jónsson, Unhól:
Frá liðinni tíð
HVAÐ VAR Á FERÐ 1 HÓLSÁ?
Óþekktar skepnur eða fiskar sáust í Hólsá á árunum 1930-1933.
Þá rann Þverá út í Hóisá. Það var í júnímánuði í blíðuveðri, sem
ég var staddur við flutninginn og ætlaði að fara að flytja fólk
yfir ána, var kominn á undan því að ánni og settist á bát, sem
hvolfdi þar. Heyri ég þá skvett í ánni og lít við. Sé ég þá óvana-
lega stóran boða við austurbrotið í aðalálnum á móts við mig á
á að gizka þriggja tii fjögra álna dýpi. Um leið kemur upp úr
vatninu eitthvað dökkleitt, að ég ætla 5-6 álnir á lengd og hálf-
önnur alin á hæð og á sömu andrá birtist annað, eins að útliti
cn helmingi minna. Þarna voru þessar skepnur, eða hvað sem það
nú var, að velta sér í vatninu sitt á hvað í 5-6 mínútur. Orsakaði
það öldugang svo mikinn, að ekki hefði verið gott að vera á smá-
bát þar nálægt.
Nú var fólkið, sem ég ætlaði að ferja, komið. Það hætti við
að fara yfir að sinni og var sent heim að láta vita, hvað sæist á
ánni. Heiman frá Unhól komu 3 menn, og fórum við á stórum
pramma austur yfir ána og urðum þá einskis varir. Ekki höfðu
þessar skepnur áður sézt tvær saman.
Hólsá var mikið vatnsfall, meðan Þverá lá í hana, dýpi mikið
og breidd um 160 faðmar. Man ég eftir, að eitt sinn er ég ferjaði
þarna yfir, var sund á hestum landa á milli. Þetta, sem sást á
ánni, tel ég hafa verið einhverja fiska úr sjó.
Það mun hafa verið sama ár, um mánaðamótin júní og júlí,
að Guðjón bróðir minn ferjaði fólk austur yfir Hólsá. Nokkrir
hestar voru með í förinni. Þegar komið var austur í miðja á,
Goðasteinn 31