Goðasteinn - 01.03.1972, Side 38

Goðasteinn - 01.03.1972, Side 38
stað, scm ég átti að koma á. Ég var alveg á réttri leið, en ekkert sást frá sér fyrir þoku og rigningu og ofsarok fylgdi með. Einu sinni vorum við Gunnar frá Tobbakoti að gera við bát við Þóristungnaflutning og áttum að sofa í kofa í Byrgistorfum, hin- um megin við Kvíslina. Það var norðanbál og frost. Þegar við komum að kofanum, var norðurveggurinn dottinn. Við fórum að hressa hann upp með steinum og höfðum poka fyrir dyrum. Gæru- skinn höfðum við með okkur og ábreiðu. Svefnpokar þekktust þá ekki né kuldaúlpur. Ekki gátum við hitað fyrir roki og um svefn var ekki að ræða. Kofann urðum við að gera okkur að góðu; okkur hafði verið sagt, að óþarfi væri að fara með tjald. Skyldi hafa verið gist í kofanum síðan? Daginn eftir fórum við að Tungnárflutningi að gera við báta og gistum þar í ágætum kofa. FERJUMAÐUR Á HÓLSÁ Einu sinni sem oftar, ferjaði ég Guðmund Jónsson frá Ytra- Hól yfir Hólsá. Það var sunnanrok, mikill jakaburður og skarir út á hyl. Allt gekk vel austur yfir, en á leiðinni til baka, vissi ég ekki fyrr til en allt var fullt af jökum umhverfis bátinn. Hann kastaðist til og frá í veðurofsanum og það brakaði í hverju tré, þó ég reyndi að verja hann. Ekki var hægt að koma fyrir árum, broddstafurinn var mín eina vörn. Að lokum komst ég út úr þessari þröng, báturinr, var aðeins ársgamall og það varð mér til lífs. Guðmundur sagði mér seinna, að hann væri búinn að sjá margt til sjós en aldrei verið virkilega hræddur um mannslíf fyrr en nú. Hann stóð á bakkanum austanmegin og fylgdist með ferð minni. Mér feilur það seint úr minni, að það var bankað hjá okkur í Unhól um hánótt í sunnan-ofsaveðri. Þar var kominn Tyrfingur frá Tungu, búinn að elta Helga Jónasson lækni frá Stórólfshvoli og að Búð. Þverá rann þá vestur. Ofsahæð var í ánni og ónýtar skarir út á hyl. Tyrfingur þurfti að komast heim, austur yfir Hólsá til að ná í hesta út að á um morguninn. Ég man eftir því, að móðir mín, Katrín Kristjánsdóttir, bað guð að hjálpa sér, þegar hún vissi, hvað til stóð. 36 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.