Goðasteinn - 01.06.1974, Side 31

Goðasteinn - 01.06.1974, Side 31
að hér sé um Suðurland að ræða. Ég veit, að þarna er höfuðból, en við eigum ekki erindi við húsbændur, heldur göngum til ein- hverskonar afhýsis, sem var þar áfast v'ð bæinn, nokkuð áþekkt og hér tíðkaðist lengi. Eg vissi í draumnum að ég var stödd í horfinni tíð. Maður geng- ur inn, góður meðalmaður á hæð, herðabreiður en grannvaxinn að öðru leyti. Höfuðið nauðrakað, enda er maðurinn í munka- kufli, gráum og óbragglegum. Ennið var hátt, nokkuð hrukkótt. Andlitið langt, hakan nokkuð oddhvöss, örlítið skökk, vísað‘ til vinstri. Maðurinn gekk að skrifpúltinu og tók að skrifa. Öðru hverju leit hann upp eins og hann væri að hugsa. Ég horfði þá í augu hans, þó ég vissi að hann sæi mig ekki. Hann hafði óvenju falleg augu, djúpblá og gáfuleg, og brá öðru hverju fyrir í þeim kímniglampa. Ég fer að ókyrrast og veit ekki til hvers ég er þarna. Þá segir fylgdarmaður minn: „Þetta er höfundur Njálu.“ Við það vaknaði ég.“ Nú er best að leyfa Aðalheiði sjálfri að gera sínar ályktanir um draum þennan, áður en ég fer að ráða hann, og eru þær á þessa leið: ,,Ég hef aldrei brotið heilann um, hvcr væri höfundur Njálu. . . . Síðan mig dreymdi drauminn held ég með sjálfri mér að höf- undurinn hafi verið fátækur listamaður, sem einhver bubbinn léð‘ húsaskjól til að skrifa eitt af ódauðlegustu listaverkum heims- bókmenntanna. Ég hef ckki komið að Odda og veit ekki, hvort landslagið í draumnum á við þann stað, en vel gæti það ver‘ð.“ Nú ætla ég að ráða drauminn. Við skulum svo ræða fleira um þessi mál á eftir. Þá skulum við gera ráð fyrir, að þarna hafi draummaðurinn sýnt þér þann mann, sem fyrstur hóf að skrifa Njálu. Ég efa ekki, að það sé sá maður, sem fyrstur lærði bóka- gerð í Rangárþingi, sjálfur Sæmundur fróði. Þú hefur ver‘ð á ferð í Odda og séð Sæmund fróða. Ekki að undra, þó hann væri eilítið glettnislegur á svipinn. Þú verður að gera þér ferð að Odda og vita, hvort ekkert þar minnir þig á það, sem þú sást í draumnum. Þeir tveir menn á íslandi, sem fyrstir læra bókagerð, eru auð- v'tað Sæmundur í Svartaskóla í Frakklandi og Isleifur Gissurar- son biskup, sem lærði í Þýskalandi. Það eru því aðeins þessir Goðasteinn 29

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.