Goðasteinn - 01.06.1974, Blaðsíða 98

Goðasteinn - 01.06.1974, Blaðsíða 98
var í Pétursey í Mýrdal klyfberi með ártali frá 18. öld. Á þessu sviði hef ég nærtækt efni í Skógasafni og raunar hið mesta og merkasta í einum stað hér á landi. Fyrst verða fyrir mér ártölin. Eftir þeim get ég raðað upp a.m.k. heilum tug klyfbera: 1821, 1832, 1840, 1856, 1862, 1864, 1866,1871,1878, 1906, 1916, 1918. Fróður og góður smiður, Einar Runólfsson á Háamúla í Fljótshlíð, sagði mér frá gamla klyfberanum í Varmadal á Rang- árvöllum komnum á vonarvöl- Hann kom í leitir, og ártalið 18^1 leyndi engu um aldur. Klyfberafjalirnar voru öreyddar, en aðrar gamlar komu í staðinn. Ætli hann eigi ekki í dag aldursmetið í röð íslenzkra klyfbera? Margir klyfberar Skógasafns eru með fagurlega skornum fanga- mörkum fyrstu eigenda, aðrir brennimerktir. Klyfberi frá Ægis- síðu á Holtum er með búmarki og krossmarki á boga, annar ber búmark Einars Sighvatssonar hreppstjóra á Yztaskála undir Eyja- fjöilum (d. 1878) og niðja hans, fuglskló. Allt ber þetta að nokkru vitni fornum háttum manna, sem ekki gátu haldizt við bú nema með því að eiga þar hæfilega marga vel reidda klyfbera. Ég hef dregið hér mið af klyfberum í starfi. Hæfa mætti að geta þess, að við viss tækifæri var klyfberi lagður öfugur á hest. Það gerðist í flutningi skipa, sem reiðingshestar gengu fyrir. Þver- tréð, sem skipið var hafið upp í, var fest framan við klyfbera- bogann, og var þá hagfellara að láta þá horfa öndvert á hestun- um. Sérstæð not klyfbera voru þau að leggja þá undir síðu stór- gripa, er þeir voru flegnir á blóðvelli. Voru klakkar þá látnir vísa niður. Vel var gengið frá klyfberum undir vetur. Gjarðir voru skol- aðar ef þörf krafði eftir leirveltu sumarsins, síðan þurrkaðar. Brugðið var þeim upp um boga og klakka. Var klyfberunum síðan fyrir komið í hjalli eða skemmu eða öðrum góðum geymslustað. Hestvagnar eða heygrindur leystu klyfbera víða af hólmi sncmma á þessari öld. Annarsstaðar var stokkið beint frá klyfja- öld inn í vélaöld. Síðustu heybandslestirnar sáust halda til húsa á sjötta tug þessarar aldar - ef ekki seinna. Nú hittist vart hestur, sem kann að ganga undir klyfjum og gömlu klyfberarnir hvílast að eilífu. 96 Goðasteinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.