Úrval - 01.05.1981, Qupperneq 14
12
ÚRVAL
þeirri stjörnu, sem næst okkur er, og
hundruð milljóna ára líða á meðan
hann fer um sólkerfi okkar og af og til
verður hann í sem svarar eins ljósárs
fjarlægð frá einhverri stjörnu.
Við gerð plötunnar gafst því tæki-
færi til þess að velta fyrir sér ýmsum
spurningum varðandi listina og lífið á
jörðunni. Hver erum við? Hvað er
mest einkennandi fyrir okkur? Eru
mennirnir færir um að búa eitthvað
það til sem er boðlegt alheiminum?
Svo kom upp annað vandamál sem
kalla má eyðieyjuvandamál. Það var
einungis hægt að taka með ákveðið
magn af öllu því sem úr var að velja.
Það varð að hugsa nákvæmlega um
hvað taka skyldi. Hvað var alls ekki
hægt að skilja eftir, hverju mátti ekki
sleppa?
Fyrst á plötunni eru 116 myndir:
þar var að fínna staðsetningu okkar í
Vetrarbrautinni. Efnafræðiformúla
DNA, sagt frá krómosómum manns-
líkamans og líffærafræði mannsins,
jörðinni okkar, sólinni, efna-
samsetningu jarðar og andrúms-
loftinu. Gerð var grein fyrir úthöfum,
ám, eyðimörkum, fjöllum, megin-
löndum, blómum, trjám, skor-
dýrum, fuglum, dýrum á landi og í
sjó, og að lokum var sýnt snjókorn.
Reynt er að lýsa manninum sem
félagsveru og menn sýndir þar sem
þeir eru að borða, drekka, vinna og
við leik. Einnig eru þarna myndir af
stórvirkjum sem maðurinn hefur
unnið, eins og til dæmis Taj Mahal,
Kínamúrnum og Golden Gate-
brúnni í San Francisco. Loks er
teikning úr Systems of the World
eftir Isaac Newton þar sem verið er
að skjóta fallbyssukúlu.
Að lokum eru svo myndir af sólar-
lagi, strengjakvartett, fíðlu og síða úr
nótnahefti, með strengjakvartett
Beethovens, númer 13 (opus 130). Á
eftir síðunni úr nótnaheftinu er leikin
þessi sama síða til þess að sýna
sambandið milli nótna og hljóma. Að
endingu eru svo kveðjur frá Carter
forseta Bandaríkjanna og Kurt
Waldheim framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna á 60
tungumálum og nokkrir tónar úr
„hálsi” tveggja hvala.
Tólf mínútur em helgaðar alls
konar hljóðum frá jörðinni. Byrjað er
með sköpun jarðarinnar, og heyra má
hið mikla regn sem myndaði höfin
og upphaf lífsins á jörðinni. Mannleg
hljóð koma út úr köldum vindum
ísaldarinnar og þannig heldur þetta
áfram og endar með fyrsta gráti
nýfædds barns, svo nokkuð sé nefnt.
Margir munu eflaust telja að allt
of miklum tíma sé eytt í hljóð frá
okkar eigin tímabili, miðað við allan
þann tíma sem liðinn er þar á undan
frá upphafí heimsins. Ef hafa ætti
þetta í réttu hlutfalli miðað við 4500
milljóna ára sögu jarðarinnar yrðu
síðustu augnablik í þeirri sögu ekki
fyrirferðarmikil á plötunni og varla
annað en öldugjálfur eða vindhviða
á auðum sléttum.
Þrír fjórðu hlutar plötunnar em
helgaðir tónlist. Það gekk á ýmsu,