Úrval - 01.05.1981, Blaðsíða 98

Úrval - 01.05.1981, Blaðsíða 98
96 ÚRVAL lúrði friðsamlega í sínu horni. Ég gat farið með hann heim aftur en eina ráðið til að vera viss um að hann væri þar kyrr var að halda honum bundnum í garðinum dag út og dag inn. Frelsið var honum jafnnauðsyn- legt og lífsloftið. Hvernig gat ég haldið honum bundnum, haldið honum frá vinum hans, frá stöðinni hans, lestunum hans? Ég ræddi þetta við annað starfsfólk stöðvarinnar. Loks ákváðum við að senda hann burtu á sama hátt og hann kom: setja hann um borð í lest sem færi svo langt sem mögulegt væri. Tóm lest var á leiðinni suður á bóginn og átti hvergi að stansa. Lestarvörðurinn hét mér því að láta hundinn af langt, langt í burtu, milli stöðva, á opnu landi. Við vorum öll viðstödd til að kveðja hann. Lampo horfði á okkur dapurlegum og biðjandi augum ofan úr flutningavagni. Þegar eimpípan vældi lokuðum við dyrunum og lestin tók að bifast. Við horfðum þegjandi á eftir henni þangað til hún var orðin að litlum depli úti við sjónarrönd. Við söknuðum Lampos. Okkur þótti langt síðan við sendum hann frá okkur. En það voru aðeins tveir dagar liðnir þegar ég sá þennan sama lestar- vörð stíga niður úr vagni. ,,Við fengum skelfilegt veður,” sagði hann. „Hundurinn stökk af milli Anzio og Nettuno þar sem við urðum að stansa af því veðrið hafði laskað brú. Hann hljóp út á akrana. Við héldum áfram okkar störfum, hljóð í fasi. ,,Það er ekki nema 250 kílómetra héðan,” sagði ég. ,,Hann verður kominn hingað eftir fáeina klukkutíma. ” Rétt var það: Lampo kom skokkandi af hraðlest frá Róm og fagnaði okkur vel. Þetta kvöld settum við hann á hraðlest til Napólí. En að þessu sinni gættum við fullra varúðarráðstafana. Við lokuðum hann inni í hundabúri í farangursvagninum og lestarvörður- inn hét því að við komuna til Napólí skyldi hann flytja hann í aðra hraðlest sem færi ennþá lengra suður. „Aldrei aftur!" Nú hafði Lampo verið fimm mánuði í burtu og enn varð mér oft litið út í auða hornið þar sem hann hafði svo iðulega sofið. Á hverju kvöldi, þegar ég kom heim, spurði Mirna: ,,Er hann kominn aftur, pabbi?” ,,Ekki ennþá, Mirna mín, — en hann skilar sér.” Ég vissi að ég var að segja ósatt. En ég treysti mér ekki til að segja henni satt. Loks hætti hún að spyrja og ég var farinn að halda að hún hefði gleymt Lampo. En eitt kvöldið, þegar hún var að fara að sofa, heyrði ég hana bæta við kvöldbænirnar í lágum hljóðum: ,,Góða María mey, þú en svo góð. Passaðu Lampo, láttu honum líða vel og látta hann rata til okkar aftur.” Seinna, þegar hún var sofnuð,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.