Úrval - 01.05.1981, Page 82
80
ÚRVAL
garðinn bak við húsið, en hann var
umgirtur háum súlum sem veittu
skugga. I sumum þessum görðum
hefur verið gróðursettur sams konar
gróður og var í þeim í þeim í upphafí
vega: kirsu- og jarðarberjarunnar,
sítrónutré og rósir. Svefnherbergin
snúa út að þessum Edensgarði.
Húsin í Pompeji eru stórkostleg en
samt sem áður er dýrð borgarinnar
aðaliega falin í listaverkum hennar.
Hér var miklum fjárhæðum eytt í
styttur úr bronsi og marmara. Ýmsir
af þeim sem komust lífs af úr
borginni snéru þangað aftur og
reyndu að grafa upp sumar af þessum
fögm styttum. Þó er þar enn að finna
mörg stórkostleg eintök sem ekki
hefur tekist að ná til. Þar má meðal
annars nefna Apollo-styttu úr bronsi,
sem er fjögur og hálft fet á hæð, og
nýlega var grafin úr öskunni fyrir
framan hús Juliusar Polybiusar. Hann
hafði eitt sinn verið þræll en var nú
mikilsvirtur stjórnmálamaður í
borginni. Það vom þó veggmyndirnar
í Pompeji sem menn urðu hvað
snortnastir af þegar þær komu í ljós
á 18. öld. Málningin, sem notuð var
við myndgerðina, þar á meðal hinn
óviðjafnanlegi litur Pompeji — rautt,
var stundum blönduð vaxi til þess að
auka glansinn inni í skuggsælum
byggingunum.
Uppruna verkanna má rekja til
löngu glataðra grískra frummynda.
Þannig er Pompeji lykill að þekkingu
okkar á grísk-rómverskri málaralist.
Eitt uppáhaldsefnið, sem fengið er í
grískri goðafræði, er þegar Perseif-
ur bjargar Andrómedu af sæbörðum
kletti. Þekktasta listaverk-
ið í Pompeji er veggmynd,
5,95 x 3,5 metrar að stærð sem sýnir
Alexander mikla í hernaði. Þetta er
mósaikmynd og í henni em 1,5
milljónir hvítra ferninga og litað gler
og einnig marmari. Myndin var
flutt hingað frá Egyptalandi og sett
upp sem skraut í húsi í Pompeji.
Fjárhættuspií, leikhús og
guðir
Á fyrstu öld biómstraði Pompeji.
Þar bjuggu ríkir landeigendur og
kaupmenn, sem versluðu með hveiti,
ávexti, vín og olífuolíu. Mikil
viðskipti áttu sér stað við nærliggj-
andi höfn í minni árinnar Sarno.
„Hagnaður er hamingja”, krotaði
einhver á vegg. Lampar, flísar, leirker
og vefnaðarvara vom framleidd á
verkstæðum í borginni. Meira að
segja læknar komust vel af, ef dæma
má af hinu yfirlætislega Húsi
skurðlœknanna þar sem mikið fannst
af alls konar skurðlækningatækjum.
Vagnar dregnir af hestum voru til
reiðu fyrir hvern sem hafa vildi við
borgarhliðin. Teningar hafa fundist í
spilavímm sem falin höfðu verið
vandlega. Á börum var hægt að fá
bæði heita og kalda drykki við L-laga
marmaraborð. Enn er hægt að sjá
verðið og hvað viðskiptavinirnir
skulduðu þar eð allt var þetta skráð á
veggi baranna.
Þarna var hægt að finna skemmtun