Stjörnur - 01.06.1948, Qupperneq 2

Stjörnur - 01.06.1948, Qupperneq 2
* Óskasíðan ¥ HÉR KEMUR saga af Ingrid Bergman og viðskiptum hinnar frægu sænsku leik- konu og fyrri húsbænda hennar. Það er táknræn saga fyrir hana. Ingrid Bergman er „ný“ í hverju hlut- verki, sem hún leikur. Engin lifir sig sem hún inn í þá persónu, sem hún á að tákna og túlka. Kvikmyndaherrarnir í Elollywood segja: Það er engin sérstök tegund hlutverka, sem hæfa henni, að- eins þau, og einungis henni. Hún getur tekið við hvaða hlutverki sem vera skal og skilað því með prýði. Og þeir eru ekki einir um þá skoðun. Þetta segja allir — nema Ingrid Bergman sjálf. Þegar í ráði var að kvikmynda ævi hinnar frægu frönsku stjörnu Sarah Bernhardt lagði David Selznick mjög fast að Ingrid Bergman að leika hinn mikla fyrirrennara sinn í kvikmynda- listinni. En Ingrid Bergman svaraði: — Nei, ég treysti mér ekki til þess, Sarah Bernhardt bar öll svipeinkenni síns franska uppruna, en ég hinsvegar míns norræna. Við þessu fekk hún hið kaldhæðna svar: — Hvað kemur það að sök. Nú man engin bíógestur eftir útliti Sarah Bern- hardt. Hver haldið þér að viti að þér séuð ekki lík henni? — Ég sjálf, svaraði Ingrid Bergman, og við það sat. av. A næstíunni munum við birta stóra mynd af Ingrid Bergman í nýjasta hlutverki hennar í kvikmyndinni „Mærin frá Orlean", en hún leikur, Jóhönnu hina frönsku frelsishetju og píslarvott. Þá mun og fylgja grein. EVELYN KEYES komst að í kvik- myndum m. a. af því 'hún var með ólakk- aðar neglur. Hin gamli Cecil B. DeMille, leikstjórinn frægi hatar lakkaðar neglur og hann tók eftir því, er Evelyn Keyes kom fyrst á fund hans, að hún var snyrtileg stúlka og falleg, en notaði ekki fegrunarmeðul í óhófi. Kannski hefur þá gamli maðurinn skotrað augum að fót- um hinnar verðandi stjörnu, því hún er nú fræg fyrir það meðal annars að eiga fegurstu fæturna í Hollywood, og er þá mikið sagt. EVELYN KEYES dansar af mikilli list og fær ekki að fela sína „göngu- teina“. En hún kann fleira en að dansa. Hún er prýðileg leikkona og því fer fjarri að hún beri allt vit sitt í fótunum. Hún er gáfuð kona og leyfir sér að hafa per- sónulegar skoðanir, sem ekki eru vinsælar allsstaðar í ættlandi hennar. Hún er fædd og uppalinn í Atlanda í Georgiufylki, en það er eitt af suður- fylkjum Bandaríkjanna þar sem ríkir ævarandi stríð milli hinna hvítu og svörtu íbúa — ættingjar hennar og æskuvinir eru svarnir negrahatarar. Engu að síður hefur hún sjálf tekið ákveðna afstöðu gegn svertingjaofsóknum og hún umgengst Paul Robeson og Lenu Horn sem vini og jafningja, en það gera ekki allir í Hollywood. EVELYN KEYES hefur leikið í mörg- um myndum, sem hér hafa komið. Hún telzt nú til hinna stærri stjarna. Hún er gift John Huston, eins og sagt var frá í smá klausu í síðasta blaði. ÓSKAMYNDIN á 3. síðu er auðvitað af Shirley-Temple. 2 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.