Stjörnur - 01.06.1948, Side 11
Menjou á líka til skiptanna. Hann
á hvor'ki meira né minna en 482 al-
k'læðnáði og 1500 hatta.
Hann hefur sérstakan þjón, sem
annast föt hans, enda er klæðas'kápur
leikarans engin ivenjuleg kytra. Hér
eru föt af öllu hugsanlegu tagi og
gerð, og þurfti Menjou í einhverri
kvikmynd t. d. að ’bera tyróla stutt-
buxur eða skozkt pils, getur hann
gengið að því vísu í klæðageymsl-
unni sinni.
Ekki hefur Menjou þurft að kaupa
öll þessi föt. Mikið kveðst hann hafa
fengið að gjöf. Einu sinni fekk hann
t. d. 10 alfatnaði hjá klæðákera í
London gegn áritaðri mynd, sem
stillt var út í glugga skraddarans,
franskur klæðskeri gaf honum átta
jakkaföt og einn frakka og vildi
ekkert hafa fyrir nema gleði gef-
andans.
En Menjou segir: Ef ég væri ekki
kvikmyndaleikari myndi ég láta mér
nægja tvenn jakkaföt, einn frakka
og þrjá hatta.
* ® Clark Gable varð fyrir því
chappi nýlega að meiða sig alvarlega
á fæti. Læknir ‘hans fyrirskipaði hon-
um þriggja mánaða hvfld frá störf-
um. Hann liggur því nú sem stend-
ur og baðar sig í Kaliforniusólskin-
inti, fótavist hefur hann þrátt fyrir
fótarmeinið. Sem sagt, það mun
vera. fótur fyrir þessari sögu, því
miður, en það er ekki fyrir öllu, sem
fréttist frá Hollywood.
stjörnur 11