Stjörnur - 01.06.1948, Síða 15

Stjörnur - 01.06.1948, Síða 15
allfast að fá Mariu sína, 'því hvernig í ósköpunum thefði hann átt að geta verið án ,'hennar. Hún er honum bók- staflega allt í öllu, 'hann getur ekki af ihenni séð nokkra stund, hún er ■hans Ihægri hönd hvar sem hann er og hvert sem hann fer. Oll samvist- arár þeirra hefur hún farið með hon- um í óperuna í hvert einasta sinn, sem hann höfur komið fram, hún hefur orðið að vera í klæðaherberg- inu hans á bak við tjöldin eða meðal áheyrenda — stundum hvorttveggja. Þegar hann er í söngferðum sem gestur víðsvegar um heim, er það hún, sem ihugsar fyrir öllu og sér um allt. Hún er meir en fjármála- ráðunautur hans, hún sér að öllu leyti um fjármá’l hans, gerir samn- inga fyrir hans hönd, annast bréfa- skriftir fyrir hann og leggur orð í belg, þegar blaðamenn koma í heim- sókn. Heimili þeirra 'hjóna er í New York — í Hollywood eru þau aðeins sem gestir — og því er stjórnað af röggsemi og myndarskap. Þangað þykir öllum gott að koma, enda eru þau virasæl. Lauritz Meldhior kann iíka vel við sig heima, hann er gef- inn fyrir kyrrð og makindi, en hrók- ur alls fagnaðar í hópi vina og gesta. En Ihver skyldi trúa því að Laur- itz Melchior stundi villidýraveiðar. Rezta skemmtun hans er nefnilega að fara í veiðiferðir, og ihann er hin prýðilegasta skytta. Rádýrsskinnið, sem hann ber með gerfi „Siegfrieds", er af dýri, er söngvarinn 'hefur sjálf- ur að velli lagt. I 'sumarleyfum sín- um fer Meltíhior til Norður-Dakota að veiða villinaut, istundum fer hann alla leið til Suður-Ameríku og skýt- ur enn virðulegri dýr t. d. jakúar. I því á Lauritz Meldhior sammerkt með flestum löndum sínum að hann er veikur fyrir góðum mat, og verð- ur þó að borða í hófi. I því sem öðru vakir frú Maria yfir honum og sér um að hann verði ekki nema hæfi- lega feitur eða rúmlega það. Lauritz Meldhior þykir gaman að lifa, honum þykir vænt um alla og öllum þykir vænt um hann, sem hafa heyrt hann eða séð, þótt ekki sé nema í útvarpi eða í kvikmynd. I einkalífi sínu er hann sami góð- l'yndi, gæfumaðurinn sem á opin- berum vettvangi. Konan hans segir: „Lauritz hefur ekki látið frægðina og framan breyta sér, hann er auð- mjúkur þjónn listar sinnar, eins og góðum listamanni ber að vera, það þykir mér vænst um af öllu góðu í fari hans“. * * Kvikmyndaleikararnir leggja mjög fyrir sig bólkagerð og seljast bækur þeirra í stórum upplögum. Jon Hafl, sá íslenzkættaði, hefur rit- að bók sem hann nefnir „Dagbók konu minnar“. Hans frú heitir Frances Langford. Errol Flynn hef- ur samið þrjár 'bækur, George Sand- ers tvær. STJÖRNUR 1 5

x

Stjörnur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.