Upp í vindinn - 01.05.1996, Qupperneq 6
V IÐTAL
Halldór Blöndal,
samgönguráðherra
Hvert er mat þitt á núverandi staðsetningu
flugvallarins í Reykjavík?
Það er auðvitað kostur bæði fyrir Reykjavík og landsbyggðina að
flugvöllurinn skuli vera svo nærri miðbæ Reykjavíkur. Það eykur á hag-
kvæmni hans og styrkir þar með samkeppnisstöðu flugsins, sem óneit-
anlega hefur veikst eftir því sem vegirnir hafa batnað. Nú þegar er búið
að leggja niður áætlunarflug til Snæfellsness og Blönduóss. Af því hafa
menn dregið þá ályktun að flestir telji bílinn hentugri kost en flugvél ef
fjarlægðin er innan 250 km eða svo. Með Hvalfjarðargöngum styttist
leiðin vestur og norður um 42 km og telja ýmsir að það muni hafa
veruleg áhrif á flugumferð til Sauðárkróks a.m.k., - ég tala nú ekki um
ef vegur verður lagður frá Sauðárltróki um Þverárfjall og niður Laxárdal.
Það er sérstaklega mikilvægt í rysjóttri tíð að flugvöllurinn sé við
miðbæ Reykjavíkur þegar alltaf má búast við töfum eða flug fellur
kannski niður. Verulegur fjöldi flugfarþega, ekki síst yfir veturinn, á
erindi í opinberar stofnanir í miðbæ Reykjavíkur eða er að leita sér
lækninga. Svo er það auðvitað þýðingarmikið fyrir ferðaþjónustuna að
flugvöllurinn sé í grennd við stærstu hótel og gististaði. Erlendir ferða-
menn vilja nýta tímann sem best og þess vegna skiptir góð tenging við
samgöngukerfi borgarinnar miklu máli.
Hver yrðu hugsanleg áhrif þess á starfsemina ef flug-
völlurinn yrði fluttur í útjaðar höfuðþorgarsvæðisins?
Það hefur ekki verið á dagskrá enda er heppilegt landrými ekki fyrir
hendi. Eini kosturinn væri að flytja innanlandsflugið til Keflavíkurflug-
vallar, en þá myndi það tvímælalaust dragast mjög mikið saman. Aætl-
unarferðum til Akureyrar stórfækkaði eða legðust nánast niður, en
flugið myndi kannski haida velli á lengstu leiðum eins og til Egilsstaða
og Isafjarðar en allur þlkostnaður myndi hækka og fargjöldin sömu-
leiðis. Sennilega risi lítill flugvöllur fyrir austan fjall fyrir Vestmanna-
eyinga.
I víðara samhengi er ljóst að flugkennsla myndi eiga erfitt uppdráttar
á Keflavíkurflugvelli og svo megum við ekki gleyma því að mikil umsvif
fylgja Reykjavíkurflugvelli þannig að margir misstu atvinnuna eða töp-
uðu verulegum tekjum ef flugvöllurinn yrði lagður niður.
Hópferðabílar 8-70 manna
ícitur Jótiasson
Sími: 564 2030
V___________________________J
Hvernig vei'ður staðið að endurbótum á
Reykjavíkurflugvelli?
Það eru viðræður í gangi milli flugmálayfirvalda og skipulagsyfirvalda
Reykjavíkur, en það er fyrirhugaður fundur milli mín og borgarstjóra
innan skamms, þar sem samgöngumál Reykvíkinga verða rædd. Ég á von
á því að flugbrautirnar verði endurbyggðar í núverandi mynd hvað varðar
legu, lengd og breidd. Æskilegast er að skipta um jarðveg og undirbyggja
brautirnar með varanlegum hætti. Þetta verður þó aðeins gert að við
höfum fullvissu fyrir því að vatnsbúskapur Vatnsmýrinnar skaðist ekki.
Hvert er mat þitt á öryggismálum flugvallarins og hvað
mætti betur fara?
Oryggi á Reykjavíkurflugvelli er vel innan þeirra marka sem skil-
greind eru af Alþjóðaflugmálastofnuninni þótt ljóst sé að ýtrustu
stöðlum varðandi hindranir og öryggissvæði er ekki fullnægt. Til þessa
er hins vegar tekið fullt tillit við hönnun blindaðflugs og annarra þátta
varðandi notkun flugvallarins. Brýnt er að endurbæta flugbrautirnar
sem ekki hafa rétt form, eru ósléttar og með lélegu malbiki, en það er í
ósamræmi við þær miklu kröfur sem nú eru gerðar til slíkra mannvirkja.
Þetta þýðir ekki að flugbrautirnar séu hættulegar fyrir þær tegundir
flugvéla sem nota þær nú, enda er langt svið á milli þess hvort flugbraut
sé í góðu lagi eða hvort hún sé beinlínis hættuleg.
Hvað viltu segja um umhverfismál eða umhverfismat
varðandi flugvöllinn?
Um þessar mundir er verið að gera úttekt á vatnsbúskap flugvallar-
svæðisins miðað við þá kosti sem til greina koma varðandi endurnýjun
flugbrautanna. Engin áform eru uppi um að gera slíka úttekt varðandi
hávaðamengun eða loftmengun enn sem komið er, enda liggur fyrir að
engin aukning verður á siíkri mengun vegna endurbóta á flugvellinum
þar sem hlutverk hans mun ekki breytast að ráði. Hins vegar telur
flugmálastjórn mjög æskilegt að gera mælingar og rannsóknir á
hávaðamengun við flugvöllinn þótt slíku verkefni verði varla komið í
framkvæmd fyrr en á næsta ári.
Mjög hefur dregið úr hávaðamengun frá flugvellinum á undanförn-
um árum og áratugum, fyrst og fremst vegna þess að nýjar og hljóðlátari
flugvélar hafa verið teknar í notkun. Á sama tíma hefur lítil breyting
orðið á umferð um flugvöllinn. Þótt vísindalegar niðurstöður liggi ekki
fyrir um þetta mál er ljóst að lítið berst af kvörtunum vegna hávaða frá
flugvellinum. Þetta er þeim mun athyglisverðara þar sem byggð er víða
mjög nálægt flugbrautum. Þá virðist nálægð við flugvöllinn ekki hafa
áhrif til Iækkunar á verði fasteigna í nágrenni hans. Af þessu má draga
þá almennu ályktun að mengun frá flugvellinum sé ekki mikil. Þó er
nauðsynlegt að það sé rannsakað ítarlega.
Hver er opinber nýting flugvallarins, er hann ætlaður
sem varaflugvöllur fyrir Keflavílcurflugvöll, aðalvöllur
fyrir ferjuflug, leiguflug og kennsluflug?
Reykjavíkurflugvöllur er fyrst og fremst aðalflugvöllur innanlands-
flugsins, en um hann fara tæplega 90% allra farþega í innanlandsflugi,
6
...upp í vindinn