Upp í vindinn - 01.05.1996, Page 9
FRAVEITU KERFI
Fullkomið yfirfall
fráveitukerfa - áhrifastærðir
Yfirfallsmannvirki fráveitukerfa flokkast til léttivirkja. Þau létta
á þeim hluta fráveitukerfa sem á efitir koma í blandkerfum. í
gildandi mengunarvarnareglugerð firá 1994 er kveðið á um við
hvaða ástand veita má skólpblandi stystu leið í viðtaka.
Tímaákvæði reglugerðarinnar gildir fyrir útþynningu skólps við
ofanvatn eða hitaveituvatn í hlutfollunum 1:5. Magnmælingar um
yfirfallsbríkur geta þvi verið gagnlegar. I þessari stuttu grein
verður með einfoldu dæmi bent á nokkur atriði sem gott er að
hafa við hönnun yfirfallsmælingar slikra mannvirkja.
Yfir lengri tímabil myndar tiltölulega lítið rennsli yfir yfirfallsbríkur
hlutfallslega stóran hluta heildarrennslisins. Mælibúnaður þarf því að
mæla lítið og mikið rennsli með góðri nákvæmni. Hagkvæmasti val-
kosturinn í dag felst í mælingu rishæðar skólpsins framan við yfirfalls-
brún. Með upplýsingum um rishæðina er síðan yfirleitt unnið með
þekktum jöfnum fyrir yfirföll til að reikna út rennslið. Nákvæm ris-
hæðarmæling tryggir þó ekki ávallt nákvæm rennslisgildi. Fram á þetta
verður sýnt hér.
Fullkomið yfirfall
Talað er um að yfirfall sé fullkomið ef rishæð skólpblands, handan
við yfirfallsbrún hefur ekki áhrif á rennslisafköstin yfir yfirfallsbríkina.
Annars er talað um að yfirfall sé kafstætt.
Léttivirki eru oft staðsett í eða við sniðræsi sem liggja við sjávarsíðuna.
Því geta yfirföll orðið kafstæð við háa sjávarstöðu. Mynd 1 sýnir við
hvað er átt.
itutækni
rtotvia
yggingarverkfræöiskor
erfisverkfræðideild
imar Linuhönmmar ehf.
■ *
HAFSTEINN HELGASON
.-Æm.
|i = 0,49 -0,51
|i = 0,64
Mynd 2: Mismunandi yfirfallsgildi [2].
Almennt um víddargreiningu
Með víddargreiningu tekst að fækka fjölda stærða sem vinna þarf
með. Þannig fæst viss bestun. Helstu þáttum (stærðum) sem hafa áhrif
á rennsli í léttivirkjum má skipta í eftirfarandi fjóra flokka:
Geometriskar stærðir, s.s. lengd, breidd og hæð
Kinematiskar stærðir, s.s. hraði og hröðun
Dynamiskar stærðir, s.s. þyngdarkraftar og viðnámskraftar
Efnisháðar stærðir, s.s. hitastig og seigja.
Yfirleitt er rennsli um yfirfallsbríkur reiknað út frá jöfnu sem kennd er
við Poleni. Fyrir fullkomið yfirfall gildir:
ö = y • F‘b-^2g ■ hV2 (i)
þar sem
b er lengd yfirfallsbríkur
h er risbœð skólpblands ofan yfirfallsbríkur
fl er yfirfallsgildi (sjá mynd 2).
Fullkomið yfirfall
Fullkomið yfirfall með breiðri krónu (sjá mynd 3) verður skoðað.
Afköstin yfir yfirfallsbrúnina eru háð:
Geometríu yfirfallsbríkur
Straumfræðilegum aðstæðum í aðrás.
Hlutarennsli á Iengdareiningu yfirfallsbrúnar er:
Q
Q — — og er háð:
b
...upp í vindinn
9