Upp í vindinn - 01.05.1996, Page 17
VIRKJUN JÖKULSÁNNA
þá talinn óvenju stór. Miðað við stækkun
gæsastofnsins frá þeim tíma er talið að hann
hafi getað verið sex þúsund pör árið 1993.
Með þeim virkjunarkostum, sem hér eru til
skoðunar er talið að um 10-15% ofangreindra
hreiðurstæða kunni að glatast undir vatn eða
raskast á annan veg. Líklegt er talið að aukin
umferð ferðamanna um svæðið, sem er fyrir-
sjáanleg hvort sem af virkjunum verður eða
ekki, muni hafa neikvæð áhrif á hagi heiðar-
gæsarinnar á svæðinu.
og nálægt meðalrennsli árinnar í dag á þessum
slóðum. Með þessum aðgerðum er talið að
orkuframleiðsla árinnar skerðist um 600
GWst/ári miðað við virkjun til Fijótsdals, sem
er u.þ.b.£ orkugeta Blönduvirkjunar í dag.
Umtalsverður hluti rennslis árinnar fer nú um
gjá vestast á fossbrúninni. Hugsanlegt væri að
beina rennsli betur á fossbrúnina með aðgerð-
um ofar í farveginum þannig að ekki yrði um
að ræða merkjanlega útlitsbreytingu. Sjá með-
fylgjandi myndir.
næstu árum við rannsóknir vegna þessara
virkjanakosta.
Helstu umhverfisáhrif vegna
virkjunar Jökulsár á Brú og
Fjöllum.
Þeir umhverfisþættir, sem virkjun þessara
fallvatna mun hafa áhrif á í mismiklum mæli
þó, eru þessir:
1. Ahrif á gróður
2. Ahrif af Hálslóni á burðarsvæði hreindýra
3. Áhrif virkjana á heiðargæs
4. Áhrif af veitu Jökulsár á Fjöllum á
Dettifoss
5. Áhrif virkjana á atvinnulíf, ferðamennsku
og útivist
6. Áhrif af veitu jökulsánna á Lagarfljót,
vatnsborð, grugg, hitastig
7. Áltrif af virkjun jökulsánna á sandstrendur
við ósa þeirra
8. Áhrif af virkjun Jökulsár á Fjöllum á
strandsjó í Oxarfirði og Lléraðsflóa
1. Áhrif á gróður
Hálslón myndast ofan við miðlunarstíflu í
farvegi Jökulsár á Brú sunnan við Kárahnúka,
Kárahnúkastíflu. Lónið verður um 38 km2 að
stærð og fara um 30-35 km2 gróðurlendis
undir vatn. Með veitu Jökulsár á Fjöllum um
Arnardalslón, sem verður um 80 lem2 að stærð,
fara um 14 km2 af gróðurlendi undir vatn.
Þessar tölur miðast við núverandi virkjunar-
tilhaganir. Til samanburðar fara um 56 km2 af
gróðri undir Blöndulón eftir að lónið hefur
verið fullgert í sumar. Við mat á umhverfis-
áhrifum annarra virkjunarkosta var mjög horft
til þess hálendisgróðurs, sem myndi tapast
vegna miðlunarlóna. Þessir kostir, sem nú eru
til frekari rannsókna munu hafa minnstu áhrif
á gróðurfar að mati sérfræðinga.
2. Áhrif á hreindýrastofninn
Talið er æskilegt að vatnsstaða Hálslóns
verði sem lægst þar eð gróður í og við fyrirhug-
að lónstæði kunni að vera mikilvægur á
burðartíma hreindýra í hörðum árum. Ekki er
þó vitað til þess að hart árferði hafi staðið
burði og viðhaldi hreindýrastofnsins fyrir
þrifum. Síðastliðin þrjú vor hafa verið teknar
loftmyndir af Vesturöræfum fyrirhuguðu
lónstæði og svæðinu í nánd við það síðari hluta
maímánaðar, stuttu eftir burðartíma hreindýr-
anna. Mest hafa verið talin um 50-60 dýr í
grennd við fyrirhugað lónstæði og aldrei neitt
dýr í lónstæðinu sjálfu þó svo að stofninn sé
nálægt hámarki. Til að komast að vitneskju
um raunveruleg burðarsvæði hreindýra og
vorbeitarlönd þyrftu að fara fram markvissari
og meiri rannsóknir. Einnig þyrfti að kanna að
hve miklu leyti Hálssvæðið væri mikilvæg
sumarbeit fyrir dýrin.
3. Áhrif á heiðargæs
Fjöldi heiðargæsahreiðra á Austurlandi var
áætlaður um fjögur þúsund árið 1990 og var
4. Minnkað rennsli til Dettifoss
Með veitu Jökulsár á Fjöllum og Kreppu
inn í Arnardalslón hverfur stór hluti af rennsli
árinnar úr farveginum þar fyrir norðan.
Meðalrennsli ánna á þessum stað, þ.e. við
Upptyppinga er um 117 m-Vsek . Talið er að
það grunnvatnsrennsli, sem falli til farvegar
árinnar frá Arnardal að Dettifossi sé um 50
m3/sek Við síðustu virkjanaáætlanir hefur
verið reiknað með að veita um 700 G1 á 70
dögum niður farveg árinnar fram hjá miðlun
við Arnardal, sem er um 115 m3/sek, þannig
að meðalrennsli á Dettifossi ætti að verða um
165 m3/sek að jafnaði að sumarlagi. Er það
svipað rennsli og er í dag í júní og september
ö.Áhrif á atvinnulíf, ferðamennsku og
útilíf
Þessi áhrif er einna erfiðast að meta af þeim
umhverfisáhrifum, sem hafa verið til umræðu í
tengslum við fyrirhugaðar virkjanir. Áhrif
virkjana á uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu
ræðst nokkuð af því hvaða tilhögun verður
valin, þ.e. fyrir hvaða orkumarkað virkjanir
verða reistar. Æskilegustu áhrif á vinnumark-
aðinn væru þau að virkjunarframkvæmdir
væru samfelldar og minnstu einingar upp-
byggðar. Eins og framangreindar áætlanir
hljóða er áætlaður kostnaður við hvora ána
fyrir sig um 57 milljarðar og mannaflaþörf
fyrir þessar virkjanir er um 5300 ársverk. Sé
...upp í vindinn
17