Upp í vindinn - 01.05.1996, Síða 52
SNJÓFLÓÐ
Líkör i til útreikni: nga
/ 1 >CÍ 1 * / £ 1 / X
askri( jlengd snjoí looa
1. Inngangur
Snjóflóð og afleiðingar þeirra hafa verið í brennidepli í þjóðfélaginu í
kjölfar tveggja hörmulegra slysa á síðastliðnu ári. Ljóst er að á nokkrum
stöðum hér á landi býr fólk við óviðunandi hættu af völdum snjóflóða,
hættu sem við höfum verið minnt illþyrmilega á að undanförnu, og
nauðsynlegt verður að bæta úr á komandi árum. Mikilvægur liður í því
að bæta þetta ástand er aukin þekking á snjóflóðum og snjóflóðahættu
hér á landi, þekking sem við getum aðeins að hluta til flutt inn annars
staðar frá en verðum að miklu leyti að byggja upp sjálf hér innanlands.
Með bættu mati á snjóflóðahættu getum við brugðist markvissar við
þegar hættan steðjar að, forgangsraðað aðgerðum til úrbóta og þannig
aukið öryggi íbúa á þessum svæðum sem mest.
Spám um snjóflóð og hættu af þeirra völdum má í stórum dráttum
skipta í tvennt, annars vegar mat á því hvar snjóflóð geti fallið og hversu
langt (hættumat, áhættumat), hins vegar spá um hvenær snjóflóð geti
fallið (snjóflóðaspá). Hættumatið er gert út frá upplýsingum um
staðhætti, snjósöfnun, snjóflóðasögu og fleiru, ásamt því sem styðjast
má við líkön til útreikninga á skriðlengd snjóflóða, eins og nánar verður
fjallað um hér að neðan. Slíkt mat er nauðsynlegt vegna skipulagningar
byggðar á snjóflóðasvæðum, hönnunar varnarvirkja og stjórnunar
aðgerða við yfirvofandi snjóflóðahættu. Við gerð snjóflóðaspáa er stuðst
við mælingar á snjósöfnun og eiginleikum snjóþekjunnar, veðurspár og
aðra þá þætti sem kunna að hafa áhrif á það hvort snjóflóð taki að falla.
Slíkar spár eru nauðsynlegur þáttur til að koma í veg fyrir slys af völdum
snjóflóða, sérstaklega við aðstæður eins og hér á landi þar sem veruleg
byggð liggur innan hættusvæða. A Veðurstofu Islands er nú unnið að
rannsóknum með það að markmiði að bæta þessar spár þannig að þær
megi nýtast sem best til varnar mannskaða af völdum snjóflóða.
Þróun reiknilíkana til útreikninga á skriðlengd snjóflóða hófst á
árunum eftir 1950. Megintilgangurinn með slíkri líkangerð var og er
enn þann dag í dag að spá fyrir um hvar snjóflóð geti fallið og hversu
langt þau geti náð. Að sjálfsögðu segir snjóflóðasagan mikið til um
snjóflóðahættu. En víðast er sagan stutt. Fram á síðustu ár hefur ekki
þótt ástæða til að skrásetja snjóflóð nema þau sem tjóni hafa valdið.
Bæir á snjóflóðasvæðum hafa stækkað mikið á síðustu áratugum og
byggðin víða teygt sig inn á svæði þar sem ekki hefur verið fylgst með
snjóflóðum. Þannig er snjóflóðasagan á helstu snjóflóðasvæðum
Gunnar G. Tómasson lault prófi í
byggingarverkfræói frá Háskóla
íslands 1986 og doktorsprófi frá
Massachusetts Institute of Technology
árið 1991. Hann starfar nú sem
dósent við umhverfis- og byggingar-
verkfræðiskor H.Í., auk þess að starfa
hjá Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen hf.
hérlendis í besta falli 50 - 100 ára löng, en víða mun styttri. Það gefur
því auga leið að algjörum tilviljunum er háð hvort snjóflóðasaga hvers
staðar inniheldur þau stóru flóð sem við viljum varast, flóð með
endurkomutíma 100-1000 ár eða hærri, þ.e. aftakaflóð. Slík flóð koma
okkur því í opna skjöldu eins og dæmin sanna.
Ein leið til þess að bæta upp þessa stuttu snjóflóðasögu er að freista
þess að flytja reynslu af snjóflóðum milli staða, þ.e. skoða aðstæður sem
valdið hafa aftakaflóðum í ákveðnum farvegum og spá fyrir um hversu
langt flóð gætu fallið annars staðar ef sömu aðstæður sköpuðust. Hér
koma reiknilíkön til hjálpar. Með þeim líkjum við eftir aðstæðum við
þekkt snjóflóð og flytjum þá reynslu yfir á aðra staði þar sem slíkar
aðstæður hafa ekki skapast á þeim stutta tíma sem snjóflóðasagan nær
yfir, þótt ekkert virðist mæla móti því að þær geti skapast.
Líkönum til útreikninga á skriðlengd snjóflóða má skipta £ tvo
meginhópa. Annars vegar svokölluð eðlisfræðileg líkön, sem eiga það sam-
eiginlegt að líkt er eftir ferð snjóflóðsins niður hlíðina með þeim eðlis-
fræðilegu lögmálum sem það verður að hlíta. Hins vegar eru svokölluð
staðfræðileg líkön, en í þeim er fyrst og fremst tekið tillit til staðfræðilegra
þátta við spá um skriðlengd snjóflóða, þ.e. lögun og hæð þeirrar
fjallshlíðar sem flóðið rennur niður eftir. Hér á eftir verður gerð stuttlega
grein fyrir þessum tveimur gerðum líkana, kostum þeirra og göllum.
2. Eðlisfræðileg líkön
Þróun eðlisfræðilegra líkana til útreikninga á skriðlengd snjóflóða
hófst í Sviss á sjötta áratug þessarar aldar. Árið 1955 setti svissneski
verkfræðingurinn Voellmy fram eftirfarandi líkingu fyrir hraða snjóflóðs
á leið sinni niður hlíð:
dv g
— =gSin0-þlgCOS0- — V (!)
Hér er halli hlíðarinnar á hverjum stað, v er hraði snjóflóðsins, h er þykkt
þess, g er þyngdarhröðunin, en stikarnir ^ og |i lýsa núningi við botn og
yfirborð flóðsins. Líkingin lýsir varðveislu skriðþunga, þ.e. öðru lögmáli
Newtons. Á vinstri hlið hennar er hröðun flóðsins, en á hægri hlið þeir
52
...upp í vindinn