Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2021, Síða 6

Sveitarstjórnarmál - 2021, Síða 6
SVEITARSTJÓRNARMÁL 6 Sveitarfélagaskóli beint í símann þinn Samband íslenskra sveitarfélaga hefur um langt skeið staðið fyrir námskeiðum í upphafi kjörtímabils fyrir nýkjörið sveitarstjórnarfólk þar sem farið er yfir helstu atriði er sveitarstjórnarfólk þarf að vita m.a. um starfsumhverfi, skyldur og hlutverk sveitarstjórna, fjármál sveitarfélaga og réttindi og skyldur sveitarstjórnarfólks. Verkefni kennslu“ eða „speglaðrar kennslu“ þar sem sveitarstjórnarfólk fær aðgang að stafrænum námskeiðum og síðan verða áfram staðnámskeið að hausti eftir kosningar þar sem áherslan verður á umræður og raunhæf verkefni. Hjá Opna háskólanum í HR er umfangsmikil þekking og reynsla af störfum og undirbúningi með sérfræðingum sem taka að sér að vera leiðbeinendur til skemmri eða lengri tíma, við að miðla fræðslu, þekkingu og þjálfun til fólks á öllum aldri. Hér mætast því sérþekking úr ólíkum áttum, í samstarfi um að móta skilvirka stafræna fræðslu. Markmið verkefnisins er að sveitarstjórnarfólk njóti upplifunarinnar af náminu og tækifæri til að öðlast aukna færni í störfum sínum. Opni háskólinn í HR útvegar einnig tæknilausnir til að gera upplifun að námskeiðinu sem besta. Þannig verður Sveitarfélagaskólinn aðgengilegur í gegnum vefsíðu sambandsins og notendavæn hönnun gerir það að verkum að hægt er að nýta sér bæði tölvur og síma við námið. Þannig getur Bryndís Gunnlaugsdóttir Lögfræðingur á lögfræði- og velferðarsviði sambandsins Valgerður Freyja Ágústsdóttir Sérfræðingur á hag- og upplýsingasviði sambandsins kjörinna fulltrúa eru margþætt og um margt krefjandi og því hefur námskeiðið verið yfirgripsmikið þar sem hratt er farið yfir helstu grunn atriði í starfsemi sveitarfélaga og sveitarstjórna. Auk þessa hafa námskeiðin skapað að einhverju marki vettvang fyrir þátttakendur til að ræða við kollega sína og starfsmenn sambandsins um vangaveltur tengt sveitarstjórnarstörfum. Ætla má að flest sveitarstjórnarfólk hafi mætt á eitt eða fleiri slík námskeið ásamt því að sum sveitarfélög hafa haldið á eigin vegum fræðslu í einhverju formi fyrir kjörna fulltrúa, bæði í sveitarstjórn og nefndum. Sambandið hefur um nokkurt skeið haft áform um að koma þessari fræðslu á stafrænt form, ekki síst til að gera það aðgengilegra fyrir þátttakendur. Kostirnir við stafræn námskeið eru að námið verður sveigjanlegt, gagnvirkt, skipulagt, þátttökumiðað og nemendur fá virka endurgjöf þegar við á. Í því skyni hefur sambandið hafið samstarf við Opna háskólann í HR. Má í raun segja að námskeið fyrir nýkjörið sveitarstjórnarfólk verði í formi „flippaðrar

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.