Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 17
17
25 ÁR FRÁ YFIRFÆRSLU GRUNNSKÓLANS
Að sameina frístundaheimili og
félagsmiðstöð undir sama hatt er
ekki auðvelt verk. Frístundamiðstöðin
Bungubrekka opnaði fyrri hluta árs 2018
og fóru fyrstu tvö skólaárin að miklu leyti
í það að koma jafnvægi á starfið og finna
farveg fyrir þessa sameiningu. Það má
segja að síðasta skólaár, 2020-2021
hafi verið fyrsta árið þegar hægt var að
taka alvöru skref í þróun á starfsemi
Bungubrekku og frístundastarfi á vegum
sveitarfélagsins.
Þessi tiltekna þróun hefði líklega ekki
verið jafn aðgengileg ef sveitarfélagið
hefði ekki verið búið að setja upp
frístundamiðstöðina og eru nokkrar
lykilástæður fyrir því. Fyrsta ástæðan er
sú að nýting fjárhags er mun betri þar
sem mest af búnaði hússins nýtist bæði
félagsmiðstöð og frístundaheimili. Önnur
ástæða er sú að þekking starfsmanna
og mannauður nýtist betur og eykur
líkurnar á því að frístundastarf vaxi jafnt
og þétt. Þriðja ástæðan og líklega sú
mikilvægasta er sú að með því að styrkja
og skapa betra starf í einni starfsemi er
óhjákvæmilegt að hin starfsemin styrkist
í leiðinni.
Frístundamiðstöð í sveitarfélagi eins og
Hveragerði starfar að mörgu leyti eins
og þær frístundamiðstöðvar sem eru
starfræktar í Reykjavík, þrátt fyrir að vera
ekki af sömu stærðargráðu. Auðvelt er
að líta á frístundamiðstöð sem heldur
aðeins utan um eitt frístundaheimili og
eina félagsmiðstöð sem óþarfa í litlu
sveitarfélagi en reynslan úr Hveragerði
sýnir að svo sé ekki. Eins og þegar
hefur komið fram þá er styrkur í samlegð
þessara tveggja þjónustueininga sem
skapar að auki heildstæðari stofnun.
Heildstæðari stofnun er meiri styrkur
fyrir sveitarfélagið á margvíslega
vegu og gerir það að verkum að rödd
frístundamála barna og unglinga tekur
meira og skilvirkara pláss í umræðu
sveitarstjórnarmála.
Framþróun og framsækni í frístundastarfi
í Hveragerði er ekki einungis háð því
að frístundamiðstöðin Bungubrekka
hafi verið stofnuð heldur einnig stærð
sveitarfélagsins. Það er auðvelt að
horfa til stærri sveitarfélaga og tengja
stærð þeirra við fleiri tækifæri og stærð
minni sveitarfélaga við færri tækifæri.
Í Hveragerði má segja að hugsunin sé
andstæða við það og ákveðið var að
nýta styrki þess að vera í meðalstóru
sveitarfélagi. Þeir styrkir sem hafa
stutt við starfið og breytingar eru gott
aðgengi að bæjarstjóra, bæjarstjórn,
fræðslunefnd, stjórnendum grunnskóla
og leikskóla og starfsmanna þeirra,
samfélagsins sem heild og öðrum
stjórnendum sem starfa á hinum ýmsu
stöðum innan sveitarfélagsins.
Stofnun Bungubrekku og aðgengi að
stjórnsýslu sveitarfélagsins er ekki
það eina sem hefur stutt við fagþróun
í starfi. Markviss og skilvirk innleiðing
gæðaviðmiða frístundaheimila sem
gefin voru út árið 2018 af Sambandi
íslenskra sveitarfélaga, Mennta- og
menningarmálaráðuneytinu ásamt
Háskóla Íslands hafa verið lykilþáttur í því
ferli. Gæðaviðmiðin gera það að verkum
að auðveldara er að forgangsraða
verkefnum og færa rök fyrir því sem
ákveðið er að gera. Gæðaviðmiðin
og lögfesting starfsins í lögum um
grunnskóla gerir það að verkum að
gæði starfsins veltur ekki lengur á
tilfinningunum og skoðunum fólks um
vægi eða gildi frístundaheimila heldur
er þetta staðfesting á mikilvægi þess
að það þurfi að sinna málaflokknum
jafnvel og öðrum lykilþáttum í starfsemi
sveitarfélaga.
Innleiðing gæðaviðmiða í starfi
frístundaheimilisins Skólasel í Hveragerði
hefur gert það að verkum að verkferlar og
uppbygging starfsins hefur bæst til muna.
Bungubrekka og frístundaheimilið er
orðin sýnilegri þáttur í samfélaginu, fjöldi
frístundaleiðbeinanda og þátttaka þeirra
í starfi er orðin meiri, öflugt valkerfi og
fjölbreytt viðfangsefni einkenna daglegt
starf og fræðsla til frístundaleiðbeinanda
og starfsmannaþróun betri. Þegar
ákvarðanir eru teknar, og spurt er um
ástæður eða rök er einfaldlega hægt að
máta starfið við gæðaviðmiðin og sýna
fram á að úrbætur og breytingar séu í
samræmi við það.
Félagsmiðstöðin Skjálftaskjól fór einnig
í gegnum miklar breytingar skólaárið
2020-2021 og var áhersla lögð á að
skapa betri aðstöðu til þess að geta tekið
á móti börnum og unglingum í 5.-10. bekk
í Grunnskólanum í Hveragerði. Starfið var
endurmetið og reynt eftir bestu getu að
núllstilla starfið og byrja upp á nýtt. Það
gekk vel, húsnæðið tók stakkaskiptum,
aðsókn unglinga var góð og almennt
séð var bæting á starfi. En hvað nú?
Félagsmiðstöðvar búa því miður ekki við
sama lúxus og frístundaheimili þegar
kemur að viðurkenningu á mikilvægi
starfsins út frá lagalegum grundvelli.
Sem betur er sú viðurkenning til staðar
í Hveragerði en sú viðurkenning er
ekki sjálfgefin og er ekki endilega til
staðar í öðrum sveitarfélögum. Það
er því mikilvægt að sama skref verði
tekið með félagsmiðstöðvar eins og
gert var varðandi frístundaheimili og að
viðurkennd gæðaviðmið verði gefin út
fyrir starfsemi þeirra..
Velgengni Bungubrekku skólaárið
2020-2021 endurspeglaðist síðastliðið
sumar í gegnum ævintýranámskeið
Hveragerðisbæjar sem frístundamiðstöðin
sá um. Ævintýranámskeið