Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 28
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Sóknarfærin
blasa við okkur
Snæfellingum
28
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði, í ítarlegu
viðtali við Garðar H. Guðjónsson um heimabæinn, fjármál
sveitarfélaga, sameiningarmál, líf sitt og störf.
Það að vera bæjarstjóri núna
er talsvert ólíkt því þegar
ég var hér bæjarstjóri í fyrra
skiptið, á árunum 1995-
2006. Þá var hér nánast
stöðugur uppgangur og
fjölgun íbúa. Verkefnin
eru öðru vísi núna. Í
sveitarstjórnarmálum finnst
mér breytingin jákvæð,
fagmennska, þekking og
samvinna hefur aukist.
Ég er bjartsýn á framtíðina og tel að
svæðið okkar eigi mikið inni hvað varðar
atvinnutækifæri og aukin samvinna og
sameining muni efla sveitarfélögin. Svo
sé ég mikil tækifæri fyrir smærri samfélög
í fjórðu iðnbyltingunni.
Þetta segir Björg Ágústsdóttir,
bæjarstjóri í Grundarfirði, í samtali
við Sveitarstjórnarmál. Hún var ráðin
bæjarstjóri eftir kosningarnar 2018 og er
því í annað sinn í bæjarstjórastólnum í
Grundarfirði. Sveitarfélagið hét reyndar
Eyrarsveit þegar Björg var ráðin í fyrra
sinnið og Björg var sveitarstjóri fyrstu
árin en ekki bæjarstjóri. Það var ekki fyrr
en 2002 sem sveitarfélagið fékk heitið
Grundarfjarðarbær eftir íbúakosningu um
nýtt nafn.
Hún er öllum hnútum kunnug í
Grundarfirði fyrr og nú, er fædd þar og
uppalin og hefur búið í bænum alla sína
tíð ef frá eru talin námsárin í Reykjavík.
Hún hefur því frá unga aldri fylgst með
þróun samfélagsins í Grundarfirði og
raunar á Snæfellsnesi öllu. Hún fæddist
í litla útgerðarbænum 1968 og var orðin
bæjarstjóri 1995, aðeins 27 ára að aldri.
Forréttindastarf
„Ég hugsa að mér hefði aldrei dottið í
hug að sækja um nema vegna þess
að ég fékk hvatningu til þess. Magnús