Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 40
SVEITARSTJÓRNARMÁL
40
Innleiðing hringrásar-
hagkerfisins krefst
samtals og samstarfs
sveitarfélaga, byggða-
samlaga, stofnana,
þjónustuðila og fleiri.
að sveitarfélög hugi að því að innheimt
sé fyrir öllum kostnaði sem tengist
úrgangsmálum sveitarfélagsins.
Innleiðing hringrásarhagkerfisins krefst
samtals og samstarfs sveitarfélaga,
byggðasamlaga, stofnana, þjónustuaðila,
atvinnulífsins og íbúa svo fáein dæmi séu
nefnd og búast má við fjölda viðburða
næstu mánuði þar sem breytingarnar
verða kynntar betur. Sambandið hefur
einnig stofnað umræðuvettvang á
samfélagsmiðlinum Facebook fyrir kjörna
fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga um
úrgangsmál og hvetjum við sem flesta til
að taka þátt í umræðum á þeim vettvangi.
Aðrar breytingar í úrgangsmálum sem
taka gildi 1. janúar 2023
• Sveitarstjórnir bera ábyrgð á að
tölulegum markmiðum sem sett eru
um endurvinnslu heimilisúrgangs og
lífræns úrgangs sé náð á þeirra svæði.
• Eftirlit með gerð svæðisáætlana
sveitarstjórna er komið á.
• Umhverfisstofnun skal útbúa
leiðbeiningar um gerð svæðisáætlana.
• Bann við urðun og brennslu úrgangs
úr sérstakri söfnun komið á.
• Samræmdum merkingum fyrir a.m.k.
úrgangstegundirnar pappír og pappa,
málma, plast, gler, lífúrgang, textíl og
spilliefni komið á.
• Innleidd framleiðendaábyrgð á
umbúðir úr gler, málm og við.
• Innleidd framleiðendaábyrgð á einnota
vörur úr plasti, s.s. ílát og umbúðir
utan matvæla og drykki, burðarpoka,
blautþurrkur, blöðrur og tóbaksvörur.
• Innleidd aukin kostnaðarþátttaka
framleiðendaábyrgðar í kostnaði
sveitarfélaga við meðhöndlun úrgangs
er ber úrvinnslugjald.
• Framleiðendur og innflytjendur
veiðarfæra er innihalda plast og
framleiðendur og innflytjendur einnota
vara úr plasti bera ábyrgð á hreinsun
úrgangs á víðavangi og ströndum.
• Skyldu til að flokka rekstrarúrgang og
byggingar- og niðurrifsúrgang komið
á og sveitarfélögum ber að tryggja
aðstöðu til að taka við þessum úrgangi
flokkuðum.
• Lögbundin fræðsluskylda útvíkkuð
og skulu sveitarfélög annast gerð
upplýsingaefnis um úrgagnsforvarnir
og meðferð úrgangs í sveitarfélaginu
og fræða almenning, rekstraraðila og
handhafa úrgangs um úrgangsmál í
samstarfi við heilbrigðisnefndir.
• Fræðsluskylda Umhverfisstofnunar,
Úrvinnslusjóðs og Endurvinnslunnar
útvíkkuð.
Handbók um framkvæmd
úrgangsstjórnunar
Greining á mögulegum útfærslum til
álagningar gjalds fyrir meðhöndlun
úrgangs
Gefin verður út handbók fyrir sveitarfélög
um úrgangsstjórnun sem verður
vegvísir sveitarfélaga sem stjórnvalda í
úrgangsmálum um þær stefnumótandi
ákvarðanir og þjónustu sem þeim eru
faldar samkvæmt lögum. Handbókin
mun jafnframt að einhverju leyti nýtast
öðrum sem starfa í málaflokknum.
Í handbókinni verður umfjöllun
um mismunandi leiðir að gildandi
markmiðum í úrgangsmálum og
sem styðja við markvissa og bætta
úrgangsstjórnun sveitarfélaga, s.s.
varðandi útfærslu á þjónustu við söfnun
og meðhöndlun úrgangs, gjaldheimtu,
fræðslu, aðra þjónustu í málaflokknum,
útboð og innkaupasamninga.
Handbókinni verður jafnframt ætlað að
skýra hverjar heimildir sveitarfélaga
eru til eftirlits og aðgerða þegar
framkvæmd í málaflokknum reynist
ekki í samræmi við stefnumótun,
samþykktir um meðhöndlun úrgangs eða
önnur fyrirmæli. Handbókin mun enn
fremur innihalda sérstakan kafla með
leiðbeiningum um gerð svæðisáætlunar
um meðhöndlun úrgangs og framkvæmd
útboða og önnur innkaup á þjónustu og
meðhöndlun úrgangs
Verklok eru áætluð í desember 2021
Aðgerðin felst í gerð yfirlits yfir
mögulegar útfærslur sem sveitarstjórnir
geta valið til álagningar gjalds fyrir
meðhöndlun úrgangs sem næst
raunkostnaði niður á hvert heimili/
fasteignareiningu og hvern lögaðila, í
greiningu á kostum og ókostum hverrar
útfærslu m.t.t. aðstæðna sveitarfélaga
á Íslandi og samanburði á hagkvæmni
mismunandi útfærslna.
Aðgerðin felst jafnframt í gerð tillögu að
nauðsynlegum ráðstöfunum til að styðja
við framkvæmdina ef við greininguna
koma í ljós hindranir sem ryðja þarf úr
vegi.
Verklok eru áætluð í nóvember 2021
ORKU-
ENDURNÝTING
Nokkur dæmi um nýju merkin.