Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 43
43
Samkvæmt ferðavenjukönnun frá
2019 sækir aldurshópurinn 18-34 ára
höfuðborgarsvæðið heim mun oftar en
aðrir aldurshópar. Höfuðborgarsvæðið
þarf því að vera vel í stakk búið til
þess að taka meðal annars á móti
ungu fólki sem gerir kröfur um gæði,
svo sem í samgöngu- umhverfis,
atvinnu- og menntamálum. Það er
því er ánægjulegt að samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytið hyggst
standa fyrir gerð sérstakrar stefnu fyrir
höfuðborgarsvæðið - höfuðborgarstefnu.
Það mun aðstoða okkur við að skilgreina
hlutverk höfuðborgarsvæðisins enn betur.
Ég bind miklar vonir við þetta verkefni.
Við eigum að horfa á landið í heild sinni
og það skiptir máli að horfa til verkefna
sem skipta máli fyrir heildarhagsmuni
landsins,“ segir Páll.
Þétting byggðar
Svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið,
Höfuðborgarsvæðið 2040, var
samþykkt 2015 og gildir til 2040. Það
er sameiginleg stefna sveitarfélaganna
Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar,
Kjósarhrepps, Kópavogsbæjar,
Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar og
Seltjarnarnesbæjar um náið samstarf,
skipulagsmál og hagkvæman vöxt
svæðisins næstu 25 árin, enda er
höfuðborgarsvæðið eitt búsetusvæði,
einn atvinnu- og húsnæðismarkaður með
sameiginleg grunnkerfi, útivistarsvæði,
auðlindir og náttúru.
Höfuðborgarsvæðið 2040 gerir áfram
ráð fyrir mikilli fólksfjölgun. Það kallar
að sögn Páls á mikla uppbyggingu
innviða, ekki síst í samgöngum.
Hryggjarstykkið í stefnunni er nýtt
hágæða almenningssamgöngukerfi sem
tengir kjarna sveitarfélaganna og flytur
farþega með skjótum og öruggum hætti
um höfuðborgarsvæðið.
„Þegar ákveðið var að hefja vinnu við
þetta svæðisskipulag 2012 hafði íbúum
á svæðinu fjölgað um 70.000 á 27 árum
frá 1985. Þegar skipulagið var samþykkt
gerðu spár ráð fyrir sams konar fjölgun
næstu 25 árin eða til 2040. Þessar spár
eru að ganga eftir og raunar gott betur.
Íbúar svæðisins eru orðnir 236.000 en
spár gerðu ekki ráð fyrir því fyrr en árið
2025. Þessi mikli vöxtur á árunum 1985-
2012 tók mikið land af sveitarfélögunum
á svæðinu, byggðin þynntist út og íbúum
á hvern hektara lands fækkaði. Bílum
fjölgaði gífurlega og umferðin þar með.
Þetta kallaði á dýra uppbyggingu innviða
í samgöngum.
Árið 2012 var á vissan hátt ákveðið
að snúa þarna við blaðinu, að byggðin
gæti ekki bara haldið áfram að þenjast
út heldur yrðu skilgreind vaxtarmörk
og skipulögð byggð innan þeirra með
blöndu nýrra hverfa og þéttingar þeirrar
byggðar sem fyrir er. Sveitarfélögin hafa
síðan unnið eftir þessari stefnumörkun og
byggð á svæðinu hefur víða verið þétt“
útskýrir Páll.
Nýtt leiðarkerfi og Borgarlína –
hágæða samgöngunet
Hann segir ljóst að fyrirsjáanleg
fjölgun íbúa myndi hafa mikil áhrif á
samgöngumál á svæðinu ef ekki yrði
gripið til annarra lausna en að auka sífellt
við gatnakerfið.
„Menn ákváðu þarna árið 2012 að taka
aðra stefnu í samgöngumálum. Umferð
á höfuðborgarsvæðinu er mjög þung á
álagstímum og það væri í raun sama
hvað við myndum stækka gatnakerfið,
umferð yrði alltaf þung ef bílum bara
heldur áfram að fjölga og allir fara leiðar
sinnar í bíl, gjarnan mjög fá eða jafnvel
einn í hverjum bíl eins og við þekkjum.
Því var ákveðið að bjóða upp á fleiri
raunhæfar leiðir fyrir fólk til að komast
leiðar sinnar. Með uppbyggingu öflugra
leiðakerfis í almenningssamgöngum og
Borgarlínu verður slíkur valkostur til. Hún
tengir kjarna sveitarfélaganna saman
og gerir fólki kleift að fara á milli svæða
miklu hraðar en mögulegt er í einkabíl á
álagstíma. Áætlað er að ferðir verði mun
tíðari en áður hefur þekkst hér. Síðan
verður leiðakerfi almenningssamgangna
þétt sem tengir íbúahverfin við Borgarlínu
og er unnið að þróun þess samhliða. Það
má líta á þetta þannig að Borgarlína verði
slagæðin í þessu kerfi en leiðarkerfið í
hverfunum háræðarnar. Fram fer mikil
vinna við að útfæra þetta kerfi.
Samhliða uppbyggingu Borgarlínu
verða miklir fjármunir lagðir í gerð Samgöngumiðað skipulag.
Árið 2012 var á vissan hátt
ákveðið að snúa þarna við
blaðinu, að byggðin gæti
ekki bara haldið áfram
að þenjast út heldur yrðu
skilgreind vaxtarmörk og
skipulögð byggð innan
þeirra með blöndu nýrra
hverfa og þéttingar þeirrar
byggðar sem fyrir er.
SKIPULAG HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS