Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 16
16
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Frístunda- og tómstundastarf á Íslandi
er fjölbreytt en jafnframt misjafnt eftir
sveitarfélögum og afar mismunandi
er hvernig og hvar það fellur innan
stjórnsýslu sveitarfélaga. Mikil
vitundarvakning hefur átt sér stað
síðustu ár vegna aukinnar áherslu á
frístundastarf og mikilvægi þess að frítími
barna, unglinga, fullorðna og aldraða
sé uppbyggilegur og jákvæður. Víða er
fjölbreytt starf í gangi í þessum efnum
en helst eru það þó frístundaheimili
og félagsmiðstöðvar sem sveitarfélög
reka með það sérstaka markmið að
þar sé þörfum barna og unglinga fyrir
uppbyggilegt félagsstarf mætt.
Ef litið er til Reykjavíkur er greinilegt
að uppbygging frístundastarfs þar
hefur verið gríðarlega öflugt og þar má
greinilega sjá að frístundamiðstöðvar
borgarinnar spila þar stórt hlutverk. Á
vef Reykjavíkurborgar kemur fram að
fimm frístundamiðstöðvar sjá um rekstur
félagsmiðstöðva og frístundaheimila hver
í sínu hverfi. Starfsvettvangur þeirra er
frítími allra borgarbúa en megin áhersla
er lögð á barna- og unglingastarf. Ekki
eru mörg önnur sveitarfélög sem hafa
farið sömu leið og Reykjavíkurborg með
því að styðjast við miðlægar miðstöðvar
þar sem allt frístundastarf flæðir í gegn.
Margvíslegar ástæður geta legið að
baki því að önnur sveitarfélög hafa ekki
valið að fara sömu leið og er líklegt
að ein af þeim ástæðum sé munur á
stærðargráðu reksturs frístundastarfs
hvers sveitarfélags. Til dæmis sér
frístundamiðstöðin Tjörnin, sem er ein af
fimm frístundamiðstöðvum Reykjavíkur,
um rekstur á sjö frístundaheimilum
og fimm félagsmiðstöðvum. Út á
landsbyggðinni veldur fámennið allt öðru
starfsumhverfi frístundastarfs.
Í Hveragerði er rekin frístundamiðstöðin
Bungubrekka og er ekki ólíklegt
að Hveragerði sé eitt fámennasta
sveitarfélagið á landinu sem hefur lagt
af stað með það markmið að sameina
rekstur frístundastarfs undir einum hatti
en hér er aðeins eitt frístundaheimili og
ein félagsmiðstöð.
Í lok árs 2017 flytur annar tveggja
leikskóla í Hveragerði í nýtt húsnæði
til þess að til þess að koma til móts við
fjölgun íbúa í sveitarfélaginu. Um leið
ákvað bæjarstjórn að eldri leikskólinn
sem var rétt um 500 fermetrar að stærð
með tilheyrandi 2000 fermetra lóð
yrði miðstöð frístunda fyrir ungmenni
bæjarins. Starfsemi frístundaheimilisins
og félagsmiðstöðvarinnar var þá á
ákveðnum krossgötum. Frístundaheimilið
var búið að vera á hrakhólum og lítil festa
náðist í starfið. Félagsmiðstöðin var enn
þá staðsett inn í grunnskólanum án þess
að vera með fast svæði og á báðum
stöðum var mikil velta á almennum
starfsmönnum og stjórnendum.
Væntingar til frístundastarfs voru að
aukast og það gamla góða sem var
til staðar var ekki lengur nægilega
gott. Því var ákveðið að sameina
frístundaheimilið og félagsmiðstöðina í
gamla húsnæði leikskólans og þar varð til
frístundamiðstöðin Bungubrekka.
Framsækni í frístundastarfi minni sveitarfélaga
Ingimar Guðmundsson
Verkefnastjóri Bungubrekku -
frístundamiðstöðvar í Hveragerði
Allar myndir með greinininni eru af vef Bungubrekku.