Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 18
Athygli sveitarstjórnarfólks er vakin á því að í lok vorþings voru samþykktar
breytingar á kosningalögum nr. 112/2021. Þar segir um kjördag.
24. gr.
Sveitarstjórnarkosningar.
Almennar sveitarstjórnarkosningar fara fram annan laugardag í maímánuði sem ekki
ber upp á laugardag fyrir hvítasunnu. Beri sveitarstjórnarkosningar upp á laugardag fyrir
hvítasunnu skal kjördegi flýtt um eina viku.
Landskjörstjórn skal auglýsa hvenær almennar reglulegar sveitarstjórnarkosningar
skulu fara fram.
Kjörtímabil sveitarstjórnar er fjögur ár.
Þetta þýðir að kjördagur sveitarstjórnarkosninga er 14. maí 2022.
18
Hveragerðisbæjar síðastliðið sumar voru
10x tveggja vikna námskeið fyrir börn
fædd á árunum 2010-2015. Aukning í
skráningu á milli ára var 100%, úr 150
skráningum yfir í 300 skráningar. Sumarið
var krefjandi og þessi mikla aðsókn sýnir
þörfina á öflugu og faglegu sumarstarfi
og eru hjólin strax farin að snúast innan
veggja Bungubrekku varðandi hvernig
best sé að mæta þeim þörfum.
Skólaárið 2021-2022 er farið af stað og
þar af leiðandi fjórða heila skólaárið þar
sem frístundamiðstöðina Bungubrekka
hefur yfirumsjón með frístundamálum
Hveragerðisbæjar. Hvar stöndum við í
dag og hver er ávinningurinn?
• Stjórnendum í 100% stöðum fjölgaði úr
einum yfir í tvo á milli skólaára 20/21
og 21/22.
• 11 starfsmenn af 13 flytjast á milli
skólaára.
• Heildstæð starfsemi er að myndast þar
sem 5 af 11 fast ráðnum starfsmönnum
starfa bæði í frístundaheimilinu og
félagsmiðstöðinni.
• Kröfur og væntingar til starfsins frá
samfélaginu er meiri.
• Minna brottfall í frístundaheimilinu
meðal barna sem eru að færast úr 1.
bekk yfir í 2. bekk.
• Húsnæðið er orðið betra og hentugra
fyrir fjölbreytta starfsemi og ætti að
nýtast fjölbreyttari markhóp.
• Daglegt skipulag og tilgangur starfsins
er skýrari.
• Aukið samstarf við grunnskólann hefur
skapað betri og heildstæðara aðhald í
lífi barna.
„Stöðnun er sama og dauði” sagði einn
frístundaleiðbeinandinn á síðasta skólaári
þegar nýjar breytingar voru gerðar á
verkskipulagi í kringum eldhúsaðstöðu
Bungubrekku. Það má segja að þessi
setning bergmáli enn þá í húsnæðinu
því þróun frístundamála í gegnum
Bungubrekku er hvergi nálægt því
að linna. Næstu skref sem stefnt er á
að taka væru erfiðari í framkvæmd ef
frístundaheimilið og félagsmiðstöðin
væru enn þá sitthvor stofnunin með
aðskilinn rekstur. Ástæðan fyrir því
er sú að þær hugmyndir sem liggja
á borðinu byggja á enn þá meiri
samþættingu og samstarfi. Markmiðið
er að Bungubrekka verði leiðandi afl í
SVEITARSTJÓRNARMÁL
„Bæjarstjórn hefur stutt heilshugar við þá starfsemi sem nú á
sér stað í Bungubrekku og við þær breytingar á frístundastarfi
íbúa sem breytt verklag felur í sér. Það er ljóst að frístundastarf
er klárlega á mikilli uppleið í Hveragerði og auðvelt er að rekja
stofnun Bungubrekku sem vendipunkt í því ferli. Ekki síður
er ljóst að starfsemi Bungubrekku hefur vakið mikla athygli
langt út fyrir bæjarmörkin og er núna einn af helstu kostum
bæjarfélagsins hvað varðar þjónustu. Því mun bæjarstjórn áfram
leggja ríka áherslu á frekari uppbyggingu á starfseminni enda er
talið að með því skapist fjölskyldum enn betri skilyrði til búsetu
og sístækkandi bæjarfélagi er slíkt afar nauðsynlegt.“ - Aldís
Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði.
frístundamálum Hvergerðinga óháð aldri
þeirra. Því þarf að finna þau verkefni
sem við eru að glíma varðandi frítíma
barna í sveitarfélaginu í samráði við
grunnskólann, íþróttafélagið, foreldra og
aðra þá aðila sem koma að daglegu lífi
barna svo hægt sé að finna lausnir til
þess að koma til móts við þau verkefni.
Það felur einnig í sér að skapa jákvæðan
vettvang fyrir fullorðna sem og aldraða
sem gæti þar af leiðandi skapað miklu
fleiri tækifæri og heildstæðara samfélag
með aðkomu allra aldurshópa. Til
þess að geta tekið þessi skref þarf
frístundamiðstöðin Bungubrekka að verða
lifandi afl, sem teygir anga sína út fyrir
húsnæði og lóð.
Sveitarstjórnarkosningar fara
fram 14. maí 2022