Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 20

Sveitarstjórnarmál - 2021, Blaðsíða 20
vera sérfræðingar í fjármálalæsi heldur að allir landsmenn hafi einhvern grunn sem hægt er að byggja á. Við teljum að með frekari áherslu á fjármálalæsi innan grunnskólakerfisins mun það leiða til fleiri öflugra og virkra samfélagsþegna. Annað fag sem ungmenni hafa kallað eftir er sérstakur áfangi um samfélagið og þau tæki og tól sem menn þurfa að tileinka sér. Samkvæmt núverandi kerfi nýta grunnskólar u.þ.b. eina kennslustund á viku í lífsleikni og okkur finnst þessir tímar vera nýttir mis alvarlega. Um lífsleikni segir í Aðalnámskrá grunnskóla að hlutverk hennar sé m.a. eftirfarandi: ,, Að styrkja á skapandi hátt áræði, frumkvæði, hlutverk, ábyrgð og sjálfsmynd nemenda þegar þeir standa frammi fyrir stórum spurningum sem varða reynsluheim, hugarheim og félagsheim þeirra“. Hér er um að ræða mjög opið fag þar sem skólunum er gefið mikið svigrúm til að ákveða hvað fellur innan þess og hvað ekki. Okkur finnst þessir mikilvægu þættir fá alltof lítinn tíma innan kerfisins. Sumar reynslusögur nemenda úr lífsleikni er ekki kerfinu til framdráttar. Við teljum að skólakerfið eigi að undirbúa nemendur fyrir lífið og til þess þurfi lífsleikni að fá meira pláss í kerfinu. Við viljum láta hana heita ,,lífsfærni“ í stað lífsleikni. Í henni fælist að undirbúa nemendur eins vel og hægt er fyrir komandi átök. Til að mynda kenna nemendum hvernig samfélagið gengur fyrir sig, hvernig maður sækir um vinnu, hver réttindi fólks eru innan opinbera kerfisins og hverjar eru skyldur samfélagsþegna. Að efla í meira mæli sjálfsímynd nemenda og sjálfsöryggi, gera skyndihjálp frekari skil, ábyrgð á eigin heilsu bæði líkamlegrar og andlegrar, hvernig á að virkja gagnrýna hugsun og læra meira um námstækni. Við teljum samfélaginu fyrir bestu að allir 20 formi núverandi bekkjakefis. Þroskastig hvers einstaklings er mismunandi og ekki eru endilega allir á sama stigi sem fæddir eru á sama almanaksári. Er það líklegra að tveir einstaklingar sem fæddir eru í janúar séu nær hvor öðrum í þroska en þeir tveir sem eru fæddir á sitthvoru árinu t.d. 31. desember eða 1. janúar? Af því leiðir teljum við að meira flæði innan bekkjakerfis grunnskólans sé að hinu góða og gæti þjónað nemendum betur. Það sem veldur ungmennum miklum áhyggjum er skortur á fjármálalæsi. Þegar nemendur útskrifast úr grunnskóla, þá komnir á 16. ár, hafa þeir fengið allt of litla kennslu á þessu sviði. Fjármálalæsi er mikilvæg undirstaða þess að geta lifað í nútímasamfélagi og snertir alla borgara næstum daglega. Ungt fólk, jafnt sem aðrir, þarf að taka flóknar ákvarðanir sem hafa áhrif á efnahagslega velferð þeirra til lengri og skemmri tíma. Slæmar ákvarðanir í fjármálum geta haft langvarandi áhrif á einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki og þjóðfélagið í heild sinni. Það er því merkilegt að einungis fáir skólar leggja áherslu á fjármálalæsi. Svo gantast menn með það að Íslendingurinn kunni ekki að fara með peninga! Þessu viljum við breyta. Með núverandi áherslum innan skólakerfisins teljum við skilaboð send á ungmenni að þau þurfi ekki að læra um fjármál nema að viðkomandi hafi sérstakan áhuga á því. Ýtir það undir misskiptingu innan samfélagsins eftir stöðu. Hér er ekki verið að segja að allir þurfa að nemendur tileinki sér færni sem getur nýst hvenær sem er og í hvaða fagi sem er. Þessar áherslur sem við nefnum geta einnig verið samtvinnaðar öðrum fögum en mikilvægt er að gera þeim hátt undir höfði svo þær gleymist ekki í kerfinu . Skólarnir gegni jú miklu stærra hlutverki en einungis að kenna mönnum að lesa og skrifa. Við viljum minna á að aukin vanlíðan meðal nemenda er ekki feimnismál heldur kemur öllu samfélaginu við. Það er ekki einungis hagsmunamál nemenda að búa til öruggara umhverfi þar sem nemendur geta blómstrað og dafnað. Við viljum að skólakerfið leggi meiri metnað í að koma á móts við nemendur innan kerfisins. Í kennslu í dag er lögð mikil áhersla á fræðslu um holla næringu og líkamlega heilsu. Við teljum að geðheilsa eigi að standa jöfnum fótum líkamlegri heilsu. Það er ekki nóg að auka sálfræðiþjónustu innan veggja skólans heldur einnig að þjálfa nemendur í því hvernig hægt sé að reyna að fyrirbyggja geðræn vandamál eða vanlíðan. Þessu tengt er aukið samskiptavandamál meðal ungmenna áhyggjuefni. Óheilbrigð samskipti meðal fólks er samfélagslegt vandamál sem ekki verður breytt nema með fræðslu. Við leggjum til að skólinn þurfi að taka aukna ábyrgð á sig og hjálpa ungmennum að efla heilbrigð samskipti. Hér gæti öflug forvarnarfræðsla spilað stórt hlutverk. Innan áfanga á borð við ,,lífsfærni“ myndi samskipti og geðrækt geta fallið þar undir. Við teljum að nemendur fái allt of litla þjálfun í að styrkja og efla eigin andlega heilsu og samskipti. Mörg jákvæð skref hafa verið tekin á síðustu árum innan skólakerfisins en ekki er allur björninn unninn. Brottfall er enn þá allt of hátt innan skólakerfisins og þá sérstaklega drengja og vanlíðan og slæm geðheilsa er stórt vaxandi vandamál. Þó að engin auðveld lausn sé í sjónmáli eigum við að sýna þor og kjark við að feta aðrar leiðir til að bæta kerfið. Við teljum að grundvallaratriði í því ferli sé að auka samráð við nemendur við uppbyggingu þess. Ef nemendur fá að koma meira að borðinu getum við, í sameiningu, leyst ýmsan vanda sem hrjá ungmenni í dag. Guðlaug Ósk Svansdóttir, verkefnastjóri, og Nói Mar Jónsson, formaður Ungmennaráðs Suðurlands. Við viljum minna á að aukin vanlíðan meðal nemenda er ekki feimnismál heldur kemur öllu samfélaginu við. SVEITARSTJÓRNARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.