Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 22

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 22
22 í þennan flokk. Hér mætti líka nefna Þjóðarsáttmála um læsi. Gerð voru mörg mistök í þjóðarsáttmála um læsi. Hringferð um landið þar sem sveitarstjórnir kvittuðu upp á plagg um betri tíð með blóm í haga voru ein mistök. Opinbert vantraust lykilaðila sem beindist gegn fagfólki og kennsluaðferðum voru önnur. Óraunhæfar yfirlýsingar um lausnir og árangur voru hin þriðja. Allt gerði þetta það að verkum að raunverulega mikilvæg framfaraskref hurfu ofan í leðjuna í ausandi roki og rigningu. Árangurinn var í engu samræmi við þær digurbarkalegu yfirlýsingar sem gefnar höfðu verið. Auðvitað var samt ekki um að ræða alvont verkefni. Það skiptir máli að vekja máls á versnandi læsi og setja það á dagskrá. Það skipti líka máli að bregðast við. Þá var gott að Menntamálastofnun kæmist í betri tengsl við skólana og tæki að sér styðjandi hlutverk í stað þess að vera dæmandi. Allt eru þetta sprotar sem byggja má á. Skoðum til samanburðar upplýsingatæknibyltinguna í íslenskum skólum. Íslenskt samfélag er löngu orðið upplýsingatæknisamfélag og því hefur tækni seytlað inn í menntakerfið eins og önnur samfélagsleg kerfi. Kennarar hafa einnig verið áhugasamir um nýtingu hennar og víða hafa sprottið upp frumkvöðlar og öflug teymi. Sveitarfélög hafa víða stutt mjög myndarlega við kennara og skóla við uppbyggingu innviða. Allt hefur þetta átt sér stað án mikilla afskipta ríkisins og í raun án þess að spretta upp úr kröfum námskrár. Það hefur verið þegjandi samkomulag um að þetta sé mikilvægt þróunarstarf en um leið hefur ekki verið fyllilega ljóst hvert þróunin komi til með að stefna. Í fjarveru leiðarljósa hafa hin almennu leiðarstef skólastarfs orðið undirstaðan. Það einkennir þróun upplýsingatækni í íslenskum skólum hin síðari ár að tæknin hefur verið nýtt til að styrkja grundvallarþætti skólastarfs. Kennarar og skólar hafa tengst mjög sterkum böndum gegnum samfélagsmiðla, samstarf, fundi og ráðstefnur. Heilt samfélag hefur myndast utan um þessa hlið skólaþróunar. Það er óefað að sterk staða upplýsingatæknimála er ein af Það er ástæða til að óska sveitarfélögunum til hamingju með aldarfjórðungs vegferð og vona að næstu 25 ár verði okkur gæfurík. ástæðum þess að raskanir á skólastarfi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar urðu minni hér á landi en í öðrum löndum. Í upphafi upplýsingatæknibylgjunnar var algengt að nemendur mættu með sinn eigin búnað í skólann. Sú nálgun var alla tíð varhugaverð vegna jafnræðissjónarmiða. Mörg sveitarfélög hafa snúið frá slíkri stefnu og byggt upp innviði. Það vekur þó auðvitað líka upp spurningar um jafnræði á landsvísu. Spurningar sem snertir kerfisforsendur dreifstýrðra skólamála. Þær ætla ég að láta liggja á milli hluta í bili og láta nægja að benda á að í kerfi, sem alla jafna breytist hægt og getur virkað þunglamalegt, eigum við hér skýrt dæmi um öflugt, hraðfara þróunarstarf sem sækir styrk sinn í fjölbreytileikann og sjálfstæðið. Forsenda þess er að gott jafnvægi sé milli jarðvegs og regns. Regn togar ekki gróðurinn upp úr moldinni og aukið regn er ekki endilega forsenda meiri ræktunar. Þá eru skýr leiðarljós eða mælanleg markmið kannski ofmetin í þróunarstarfi ef til staðar eru óumdeild leiðarstef. Af þessu getum við lært. Það er ástæða til að óska sveitarfélögunum til hamingju með aldarfjórðungs vegferð og vona að næstu 25 ár verði okkur öllum gæfurík. Grunnskólinn á Djúpavogi sem nú tilheyrir Múlaþingi. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.