Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 42
þeirri uppbyggingu. Eins þegar barist
var fyrir nýjum Norðfjarðargöngum eða
öðrum samgöngubótum. Í Múlaþingi var
farin ný og áhugaverð leið með stofnun
heimastjórna sem tryggja að vissu marki
forræði íbúa á hverjum stað í eigin málum
en í góðum tengslum við sveitarstjórn.
Það er ekki komin mikil langtímareynsla
á þetta fyrirkomulag en ég hygg að þetta
muni reynast vel í framtíðinni,“ segir Páll.
Öðru vísi verkefni og áskoranir
Hann segir áhugavert að fást við önnur
verkefni og öðru vísi áskoranir í starfi sínu
sem framkvæmdastjóri SSH.
„Þótt það hafi ekki átt við um Fjarðabyggð
þá eru sumar byggðirnar úti á landi
að fást við fólksfækkun og eiga í
einhverjum tilvikum í erfiðleikum með
að halda úti nauðsynlegri þjónustu
við íbúana. Þetta horfir öðru vísi við
á höfuðborgarsvæðinu. Hér hefur
talsverð fólksfjölgun verið viðvarandi og
ekki fyrirsjáanlegt að lát verði á henni.
Hlutfall íbúa á höfuðborgarsvæðinu
af heildarfjölda landsmanna er um 64
prósent og hefur haldist nokkuð óbreytt
síðastliðin 20 ár. Hér snúast verkefnin
meira um að ná utan um fólksfjölgunina
bæði á sameiginlegum vettvangi
sveitarfélaganna og í hverju sveitarfélagi
fyrir sig. Skipulagsmál, samgöngumál,
umhverfis- og úrgangsmál, mennta-,
félags- og íþróttamál eru þar efst á
baugi. Um sum þessara mála snúast
stærstu verkefni sóknaráætlunarinnar
42
og sveitarfélagið á auðveldara með að
sinna hlutverki sínu og þjónustu við íbúa.
Það er líka betur til þess fallið að gæta
hagsmuna íbúanna og svæðisins.
Aðkoman að aðdraganda sameiningu
sveitarfélaganna sem mynduðu
Múlaþing var mjög gefandi verkefni.
Þar er það sama uppi á teningnum, ég
tel að byggðirnar muni standa sterkari
eftir sameiningu og það sannaðist
þegar atburðir á borð við skriðuföllin
á Seyðisfirði urðu, að það er gott að
eiga stjórnsýslulegan bakhjarl í stærra
samfélagi. Eins var þegar tekið var
á móti nýrri atvinnuuppbyggingu í
Fjarðabyggð. Þar var stærra sameinað
samfélag og atvinnusvæði lykilatriði í
á höfuðborgarsvæðinu og síðan í
svæðisskipulaginu fyrir svæðið.
Verkefni SSH eru því fjölbreytt.
Starfsemin hefur verið efld og við
byggjum á öflugu teymi sem þarf að efla
enn frekar, svo sem hvað varðar tölfræði-
og hagfræðileg málefni. Við höfum aukið
upplýsingamiðlun til muna, fylgjum
málum eftir í sveitarstjórnum og höldum
reglulega upplýsingafundi um mikilvæg
málefni á höfuðborgarsvæðinu fyrir kjörna
fulltrúa. Á suma þessara funda höfum
við boðið þingmönnum svæðisins og
þingnefndum ef svo ber undir. Við ætlum
okkur síðan að efla okkur enn frekar í
miðlun upplýsinga um höfuðborgarsvæðið
og höfum verið að vinna að stóru
verkefni þegar kemur að stefnumótun
og stjórnsýslu byggðasamlaganna á
höfuðborgarsvæðinu. Þá höfum við
í auknum mæli verið að leggja fram
umsagnir um þingmál sem eru mikilvæg
fyrir höfuðborgarsvæðinu, meðal annars
um byggðamál en þau eru mjög mikilvæg
í starfi allra landshlutasamtaka“ segir Páll.
Hann segir mikilvægt að ríkið setji fram
byggðaáætlanir og styðji við veikari
byggðir víða um land. „Það er gott og
engin ástæða til annars en að fagna
þeirri stefnumótun ríkisins. Sums staðar
þarf að bæta enn frekar í alls kyns
byggðaþróunarverkefni og það er vel. Við
erum held ég öll sammála um að byggð
sé öflug á sem flestum stöðum á landinu
og það á líka við um höfuðborgarsvæðið.“
Páll segir að mikilvægt sé að mótuð
verði sérstök heildarstefna fyrir höfuð-
borgarsvæðið samhliða hefðbundnum
byggðaáætlunum í framtíðinni.
„Umræða um byggðamál snýst oft
upp í að etja höfuðborgarsvæðinu og
landsbyggðinni saman, að höfuðborgin
sogi til sín fólk og störf og það þurfi sífellt
að vera að leiðrétta einhvers konar halla.
Samkeppnisstaða höfuðborgarsvæðisins
er þó að mínu mati afar mikilvæg fyrir
landið allt, eins og byggðirnar í landinu
eru mikilvægar fyrir höfuðborgarsvæðið
sem er meðal annars í samkeppni við
erlendar borgir um íbúa. Ég heyri og
þekki það úr eigin ranni að það er ekki
sjálfgefið að val ungs fólks um búsetu
standi bara milli landsbyggðarinnar og
höfuðborgarsvæðisins.
Í Múlaþingi var farin ný
og áhugaverð leið með
stofnun heimastjórna sem
tryggja að vissu marki
forræði íbúa á hverjum
stað í eigin málum en
í góðum tengslum við
sveitarstjórn.
Mannfjöldaspá 2020-2024, áætlaður mannfjöldi í árslok 2024.
SVEITARSTJÓRNARMÁL