Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 56

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 56
SVEITARSTJÓRNARMÁL 56 Við þurfum líka að muna að Ísland er ekki eitt svæði eða ein stór landsbyggð. Íslandi tilheyra margar landsbyggðir og innan þeirra allra eru börn. Réttur barna til öryggis og verndar óháð búsetu er stórt og mikilvægt byggða- og réttindamál og þarf að gæta þess vel að börn úr dreifðari byggðum njóti sömu réttinda og önnur börn. Verkefnið sjálft er umfangsmikið og í mörg horn að líta, en rauði þráðurinn og kjarni hverrar aðgerðar kristallast óneitanlega í öryggi barna. Öll börn eiga rétt á því að upplifa öryggi rétt eins og 19.gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna segir, og ber okkur að gera allar viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags- og menntunarmála til að vernda barn gegn öllu ofbeldi, þar með talið kynferðislegu. Eins og fyrrnefnd skýrsla Unicef sýnir svart á hvítu höfum við ekki verið að hlusta, við sofnuðum á verðinum. Nú er tími aðgerða. Markmiðið okkar hlýtur alltaf að vera að breyta umhverfinu, gildunum og viðmiðunum sem hafa með tímanum holað steininn og stillt sýn samfélagsins þannig að við lítum svo á að kynferðisofbeldi gegn börnum sé ritað í stein, sem náttúrulögmál – eitthvað sem alltaf er og ekki hægt að breyta. Kynferðisofbeldi á ekki að vera órjúfanlegur hluti tilverunnar. Með samstilltu átaki breytum við því hvernig við nálgumst þetta málefni, í sameiningu og með upplýstu átaki breytum við umhverfi barnanna okkar til hins betra. Hagsveiflur og sveitarfélög Sigurður Ármann Snævarr Sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga Þjóðarbúskapur Íslendinga er undirorpinn meiri sveiflum en flestra þeirra þjóða sem við berum okkur saman við. Búskapur hins opinbera markast mjög af þessum sveiflum. Það á við um hvoru tveggja ríkið og sveitarfélögin. Raunar tekur ríkissjóður á sig meiri hagsveifluáhrif en hefur á móti meiri burði til að standa þau af sér en sveitarfélög. Það er af þessum sökum að ríkið gegnir hagstjórnarhlutverki en ekki sveitarfélög. Sveitarfélög og hagsveiflur Veltufé frá rekstri (í hlutfalli við tekjur) er helsti mælikvarði á rekstur sveitarfélaga (hér A-hluti). Þessi mælikvarði sveiflast með áþekkum hætti og hagvöxtur (breyting landsframleiðslu á föstu verðlagi). Er það sýnt á mynd 1. Öllum stóru sveiflum hagvaxtar fylgja viðlíka sveiflur í veltufé. Árið 2020 varð hagvöxtur neikvæður um 6,5% og veltufé frá rekstri sveitarfélaga lækkaði úr tæplega 10% af tekjum 2019 í 4,9% árið 2020. Langt er um liðið síðan veltufé hefur verið svo lítið og þarf að leita allt aftur til ársins 2003 er það nam 4,7% af tekjum. Til samanburðar má svo nefna að þetta hlutfall var 6% þegar það var sem lægst á hrunárunum 2008-2011. Hagsveiflur hafa margvísleg áhrif á fjármál sveitarfélaga. • Útsvarstekjur. Launatekjur mynda 75-80% útsvarsstofns. Þegar einstaklingar missa vinnuna og fara á atvinnuleysisbætur lækka tekjur þeirra verulega í flestum tilvikum og þar með útsvarstekjur. Hið gagnstæða á við þegar einstaklingar fá atvinnu og fara af bótum. • Framlög jöfnunarsjóðs. Tekjur sjóðsins eru beintengdar við skatttekjur ríkis og sveitarfélaga. Tekjur ríkisins eru mun sveiflukenndari en sveitarfélaga og þess vegna hafa framlögin magnað sveiflur í fjármálum sveitarfélaga. • Fasteignaskattar. Óvíða í heiminum eru fasteignaskattar sveitarfélaga jafn tengdir við markaðsaðstæður og hér á landi. Fasteignamarkaðurinn er mjög kvikur og fylgja honum miklar verðsveiflum. Fyrir vikið eru hagsveifluáhrif skattsins umtalsverð. • Gatnagerðargjöld og byggingaréttur. Sala lóða með einum eða öðrum hætti hefur verið drjúg tekjulind stærstu sveitarfélaganna, þetta á einkum við um Reykjavíkurborg sem hefur haft umtalsverðar tekjur af sölu byggingaréttar þegar vel hefur árað. • Fjárhagsaðstoð. Útgjöld til fjárhagsaðstoðar aukast í niðursveiflu og minnka smám saman þegar betur árar. Það er öðru fremur langtímaatvinnuleysi sem stýrir þessu. • Launakostnaður. Þegar vel gengur í efnahagslífinu lækkar hlutfall milli

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.