Mímir - 01.06.1981, Page 17

Mímir - 01.06.1981, Page 17
þannig að þar er ekki hætta á misskilningi, og því má alveg eins nota en. Annars er ekki alveg sama hvort notað er en eða heldur í þeim tilvikum þar sem val er á milli. Heldur virðist krefjast undanfar- andi samræðna; vera notað í svörum, mót- mælum, leiðréttingum o. s. frv. Eins og Krist- ján Árnason bendir á (1980:92—3) eru setningafræðileg áhrif heldur önnur en en; heldur krefst umröðunar frumlags og sagnar. Kristján telur hugsanlegt að heldur sé ,,hálf- gildings atviksorð“, sem einnig megi nota til tengingar (1980:93). En um heldur verður ekki fjallað meira hér. I tengslum við samspil neitunar og en verður að benda á, að notkun en er ekki leyfi- leg ef neitun er í báðum setningunum, sama hve margfaldur munur þeirra er að öðru leyti: (53) * Jón barði ekki Maríu en kyssti ekki Stínu (54) *Jdn kyssti ekki Maríu í gær uppi á lofti en Pétur barði ekki Stínu í dag bak við skúrinn Neitunin virðist þarna eyða öllum andstæð- um; líklega má lýsa (53) svo: (55) ~B(j,m) & ~K(j,s) þar sem B = berja, K=kyssa, j = Jón, m = María, s = Stína. Neitunin myndi þá verka eins og núll í margföldunardæmi; útkoman verður alltaf núll, hversu háar sem aðrar upphæðir í dæminu eru. Utkoman báðum megin við tenginguna verður því núll; 0 = 0, og engin andstæða skapast sem réttlæti notk- un en. 2.3 EÐA 2.3.1 EÐA þegar um val er að ræða. Eða er notað í allt öðrum kringumstæð- um en og og en; þ. e. þegar um val milli tveggja (eða fleiri) möguleika er að ræða. Og það er yfirleitt skylda að velja annan (einn) möguleikann; í því tilliti er notkun eða ólík notkun röktengingarinnar v, þar sem hægt er að velja annan möguleikann eða háða (sbr. t. d. Alhvood, Andersson & Dahl 1977:34—7). Eða gerir ekki síðri kröfur til skyldleika milli setninganna en og; valið þarf að vera raunhæft á einhvern hátt. Því er (56) *Jörðin er flöt eða íranskeisari er dauður ákaflega slæm. E. t. v. mætti tákna merkingu eða með <& + [ +VAL]. Án þess að geta nokkuð fullyrt um það grunar mig að tenging sjálfstæðra heilla setn- inga með eða sé fremur sjaldgæf. Yfirleitt nær valið eða óvissan aðeins til fárra þátta í setningunum. Þess vegna er (57) ??Jón barði Maríu eða Pétur kyssti Stínu frekar óeðlileg, þótt tenging með og eða en væri þarna ágæt. En það er erfitt að ímynda sér aðstæður þar sem val er á milli þessara möguleika. Lítum á (58): (58) ?Jón barði Maríu eða beit Stínu Þessi er skárri, því að óvissuþættirnir eru færri; það er vitað að það var Jón sem að- hafðist eitthvað. (59) a Jón barði Maríu eða Stínu b Jón barði eða beit Maríu c Jón eða Pétur barði Maríu Setningar á borð við (59)a—c tel ég lang- samlega algengastar eða-setninga; þar ríkir aðeins óvissa um eitt atriði í hverri. Almennt virðist gilda, að edö-setningar verði því eðli- legri sem óvissuatriði eru færri. (Sama gildir í spurningum, sbr. hina frægu prófspurningu: Hver voru hin frægu orð og hver mælti þau?) 15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.