Mímir - 01.06.1981, Blaðsíða 107
STARFSANNALL MIMIS
1979 — 1980
Aðalfundur Mímis haustið 1979 var haldinn í Árnagarði
að viðstöddu fámenni. í stjórn voru kjörin:
Sigurður Hróarsson, formaður,
Finnur Karlsson, gjaldkeri og
Erla Hrönn Jónsdóttir, ritari.
Meðstjórnendur voru:
Ragna Steinarsdóttir frá ritnefnd og
Rögnvaldur Guðmundsson, frá skemmtinefnd.
Aðrir í ritnefnd voru:
Guðvarður Már Gunnlaugsson,
Þorsteinn Þórhallsson,
Hörður Sigurðsson og
Ari Páli Kristinsson.
Aðrir í skemmtinefnd voru:
Valgarð Runólfsson,
Álfheiður Kjartansdóttir,
Guðmundur Andri Thorsson og
Jón Thoroddsen.
Ætlunin var að íslenskunemar blönduðu nokkuð saman
geðum sínum á kynningarkvöldi en af því varð ekki, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir stjórnarinnar nýju. Ástæðan var að
ekkert húsaskjól fannst fyrir hópinn. Áform um krafta-
kvöid fór á sömu leið. Stjórnin var ákaflega lítt menningar-
lega sinnuð og eyddi öllum sínum starfskröftum í skemmt-
anahald og sýndist sitt hverjum um ágæti þess.
En það þýðir víst ekkert að fást um það sem ekki varð
heldur er best að snúa sér að því sem gerðist. Fyrsta
skemmtunin var rannsóknaræfing og var hún haldin 20.
des. í Félagsstofnun stúdenta. Þar voru saman komnir ís-
lenskunemar, sagnfræðinemar og spekingar úr Félagi is-
lenskra fræða. Erindi kvöidsins flutti Stefán Karlsson og
fjallaði um málpólitík. Umræður voru hinar líflegustu og
skemmtu menn sér hið besta nokkuð fram eftir nóttu.
Að afloknu jóla- og prófstandi átti að halda þorrablót
Mímis föstudagskvöldið 14. mars en á síðustu stundu gripu
veðurguðirnir í taumana og öllu var aflýst vegna aftaka-
veðurs. En þar eð fólk var almennt tilbúið að fara, ýmist i
Árnagarði bíðandi eftir rútu, eða í samkvæmi úti í bæ var
öllum safnað saman þangað. Þar var síðan setið, eða staðið,
drukkið og sungið fram eftir kvöldi og mun þetta sjálfsagt
vera með fjölmennustu heimahússamkvæmum sem ís-
lenskunemar hafa sótt. Síðan fór allur skarinn i Óðal og hélt
þar uppteknum hætti og segir ekki meira af því.
Háifum mánuði síðar, laugardaginn 29. mars, var svo hið
eiginlega þorrablót Mímis haldið — ef eiginlegt skyidi kalla
— það var ekki nóg með að bæði þau þorri og góa væru lið-
in helduf var snæddur fremur nútímaiegur matur, svokallað
kalt borð, en ekki þorramatur súr og stækur. En til að rig-
halda nú í hefðina nefndist fagnaður þessi þorrablót. Það
var haldið í Skíðaskálanum í Hveradölum eins og nokkur
undanfarin ár. Heiðursgestur var Jón Böðvarsson. Víta-
nefnd starfaði að vanda með miklum myndugleika og otaði
þeim skötuhjúum Grími og Dauðaskelinni óspart að fólki.
Menn virtust skemmta sér hið besta, ef ekki við dans og
söng inni, þá úti í guðs hvítri náttúrunni á sleðum og snjó-
þotum. Um þrjúleytið um nóttina var komið til byggða.
Næsti stórviðburður í gleðihaldi var rannsóknaræfing,
haldin í Félagsstofnun 18. april. Hallfreður Örn Eiríksson
flutti erindi sem fjallaði um þjóðsagnasöfnun Jóns Árna-
sonar. Umræður urðu nokkrar en þó ekki sem skyldi sökum
mannfæðar. En þegar líða tók á kvöldið rættist heldur úr og
fólk fór að síga á staðinn þó aldrei yrði fjölmennt. Mikið
var dansað um kvöldið, aðallega að hætti Færeyinga, undir
öruggri leiðsögn Stefáns Karlssonar.
Fvrirhuguðu vorferðalagi var aflýst þar eð próf voru l'arin
að nálgast allískyggilega og fólk farið að nýta tímann í
þeirra þágu.
Eftir sól og sumaryl hittust Mímisfélagar hressir og
endurnærðir og hófu störf að nýju. Rannsóknarleiðangur
var farinn laugardaginn 4. október um Borgarfjörð í blíð-
skaparveðri. Fararstjóri var Sveinn Skorri Höskuldsson og
heiðursgestur og sérlegur ráðgjafi var Óskar Halldórsson.
Komið var við í Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd og
hlýddu menn þar á erindi sóknarprestsins um kirkjuna og
Hallgrím Pétursson. í Skorradal var snæddur hádegisverð-
ur í kjarrivaxinni hlíð. Sveinn Skorri var afar samvisku-
samur fararstjóri, benti mönnum á holt og hrímgar hlíðar
og sagði sannar sögur eftir ömmu sinni. Stoppað var á Borg
á Mýrum og staðurinn rannsakaður hátt og lágt en engar
menjar fundust um veru Egils þar. Komið var við i Húsafelli
og Reykholti, Snorralaug barin augum og kirkjukór settur á
laggirnar. Á heimferðinni var Tummu Kukku ákaft hampað
svo og félaga Bakkusi. Segir svo ekki af för Mímisliða meir,
nema hvað komið var í bæinn um kvöldmatarleytið. Er það
mál manna að rannsóknarleiðangur þessi hafi í alla staði
verið hinn ánægjulegasti.
Þegar hér var komið sögu var farið að nálgast stjórnar-
skipti en þau fóru fram með tilheyrandi viðhöfn á aðalfundi
Mimis 23. október 1980.
Fyrir hönd Mímis
Erla Hrönn Jónsdóttir, ritari.
105