Mímir - 01.06.2023, Page 5

Mímir - 01.06.2023, Page 5
3Mímir 53 - Mímishöfuð Ávarp ritnefndar _________________________________ Tímarit Mímis er nú risið úr dvala og vaknað til lífs eftir sjö ára hlé. Öldin var önnur árið 2016 þegar Mímir var seinast sleginn á pappírsörk: Trump var enn ókjörinn forseti, plágan mikla ekki nema fjarlægur vísindaskáldskapur og górillan Harambe var enn á meðal vor. Á breyttum tímum má samt alltaf líta til hins liðna og sækja í sannreyndan menningararf okkar, endurnýja hann og laga að breyttum aðstæðum. Varðveisla snýst ekki bara um að taka við því sem er heilagt, loka það inni í sýningarkassa og skamma fólkið sem kámar glerið út. Varðveisla snýst líka um að huga því sem er lifandi, síbreytilegt og virkt, halda utan um það og blása í það lífi svo næsta kynslóð geti gert það að sínu. Því gleður okkur að kynna að Tímarit Mímis kemur nú fram undir nýju nafni, Mímishöfuð, í undirtitli ásamt yfirtitlinum Mímir 53 enda er þetta tímarit aðeins einn kafli í lengri sögu. Við vonum að eldri Mímisliðar fyrirgefi okkur og fagni þessari nýju nafnbót með okkur. Einnig óskum við komandi ritstjórnum allrar bestu lukku og lánsemi, hvort sem þau haldi í hefðina eða hafni henni. Mímir kemur nú út í fyrsta sinn sem veftímarit á netinu (eftir því sem við best vitum) samhliða prentaðri útgáfu. Í henni má finna fræðilegar greinar um íslenskt mál og málvísindi, viðtöl, hugleiðingar, skáldskap upp úr skúffunum og skemmtiefni aftast fyrir þau sem vilja vita Ritnefnd Mímis þakkar öllum sem lögðu hönd á plóg við að gera Mími 53 – Mímishöfuð að veruleika.

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.