Mímir - 01.06.2023, Blaðsíða 45
43Mímir 53 - Mímishöfuð
aðeins meira en eitthvað skítaveður, sagði Barði. –Kallaðu
í hann, ítrekaði hann og fór út úr brúnni. Kristján horfði á
kaffibollann hans á borðinu. Það rauk ennþá úr honum.
Kristján og Gestur voru æskuvinir og ólust upp saman í
sjávarþorpi við Súgandafjörð. Gestur hafði verið hálfgerður
heimalingur hjá fjölskyldu Kristjáns, því Gestur bjó hjá
einstæðri móður sinni sem vann mikið og drakk illa þess á milli.
Allt þorpið vissi af óreglunni heima hjá Gesti og þorpsbúum
þótti vænt um drenginn og reyndu að aðstoða hann eftir bestu
getu til þess að forða honum frá því aðhljóta sömu sorglegu
örlög og faðir sinn. Móðir hans virtist stefna sömu leið á
ógnarhraða.
Vinskapur þeirra Gests breyttist þó eitt örlagaríkt kvöld
þegar Kristján var nýkominn með bílpróf. Hann hafði boðið
Gesti og Hrannari vini þeirra með sér á rúntinn eitt kvöld
í nóvember. Kristján hafði misst stjórn á bílnum neðan við
göngin og rankað við sér í bílhræi niðri við fjöruna. Gestur
slasaðist illa og þurfti læknishjálp en Kristján slapp ómeiddur
fyrir utan mar eftir bílbeltið. Hrannar var ekki í belti og
skaust út um afturrúðuna í veltunni. Hann lifði slysið ekki af.
Þorpsbúar urðu harmi slegnir vegna dauða Hrannars.Kristján
hafði ekki höndlað að búa í þorpinu eftir slysið og hann flutti
með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur. Gestur varð eftir hjá
móður sinni og þeir höfðu lítið talast við síðan. Gestur hafði
ekki einu sinni mætt í jarðarförina.
Kristján ákvað að sigla í var undir Bolungarvík. Á leiðinni
stein þagnaði mótorinn og skipið varð vélarvana. Kristján
kallaði Barða upp í brú og innan tveggja mínútna var hann
mættur, móður og másandi.
- Við erum með báða vélstjórana í þessu. Skrúfan hefur
kúplast út. Helgi telur að það taki um einn og hálfan tíma að
gera við þetta, sagði Barði og þurrkaði svitadropana af enninu.
- Það er orðið andskoti dimmt. Ég sé ekki eina einustu
glætu, tautaði Kristján.
- Hvert rekum við? spurði Barði.
- Við erum sirka 4 mílum fyrir utan Grænuhlíð.
- Hvað höfum við langan tíma?