Mímir - 01.06.2023, Blaðsíða 10

Mímir - 01.06.2023, Blaðsíða 10
8 Fyrir utan þessa 100 nýnema í stofu 201 voru þar Eiríkur Rögnvaldsson og Matthías Viðar Sæmundsson heitinn sem léku á als oddi eins og eðlilegt var – þetta er aðeins flóknara fyrir þá sem nú halda slíka fundi fyrir fámennari hópa. Ekki veit ég hvort það var aðeins ég en tilfinningin var sterk fyrir því að þetta nám yrði mun strembnara en menntaskólinn. Ekki dró úr þessari tilfinningu í fyrsta námskeiðinu þegar Bergljót Kristjánsdóttir skeiðaði inn í stofuna og byrjaði að kenna á göngunni inn. Á dagskrá hjá henni voru tvær bækur á norsku en einnig Das sprachliche Kunstwerk eftir Wolfgang Kayser, tæplega 500 blaðsíður á þýsku með afar smáu letri. Ég fór strax á bókasafnið sem þá var í kjallara Aðalbyggingar og minnti einna helst á frystiklefa í sláturhúsi. Ég á til að taka allt bókstaflega sem sagt er og það var ekki fyrr en eftir jól sem ég komst að því að engum öðrum nýnema en mér hafði dottið í hug að lesa þessa bók enda samnemendur mínir margir rígfullorðnir og veraldarvanir. Fæstir þorðu að tjá sig í tímum enda hófust allar spurningar stúdenta á orðunum „Sagði ekki Voltaire árið 1732 að …“ eða einhverju svipuðu. Í ýmsum námskeiðum voru eldri nemendur sem höfðu kynnst öllum skáldunum persónulega. Í öðrum var fólk sem hafði þáskildagatíð á hraðbergi. Verkefnum var skilað nánast í hverri viku. Á mitt heimili hafði verið keypt tölva í tilefni háskólanáms okkar. Á þá tölvu skrifaði ég eina af mínum fyrstu ritgerðum sem fjallaði um skáldsöguna Þel eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur. Mér fannst ég ekkert botna í henni en komst þó klakklaust gegnum verkefnið. Sennilega hafa kennarar í Árnagarði aldrei verið hressari en upp úr 1990. Þeir sóttu flestir kaffistofu stúdenta fremur en þá á 4. hæð, fóru í allar Mímisferðir án þess að vera boðið sérstaklega. Margir fóru með stúdentum í kaffi í hvert sinn enda voru kaffitímar þá 15 mínútur en ekki 10 (hinir stuttu kaffitímar eru hugmynd raunvísindamanna). Drjúgur hluti kennslunnar fór fram utan kennslutíma og meðal þess sem þar var á dagskrá voru Skjónukvæði, Lambið hinsta og sögur af Jóni Helgasyni, Bjarna Guðnasyni og Birni Karel. Á þessum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.