Mímir - 01.06.2023, Side 7
5Mímir 53 - Mímishöfuð
koma í viðtal á Háskólatorgi með örstuttum fyrirvara og kynna
verkefnið í blaðinu.
Hvernig kom hugmyndin til ykkar?
„Ella hringdi í okkur daginn sem við áttum að skila inn
umsókninni,“ segir Júlía þegar hún lýsir því þegar Ella stakk
upp á hugmyndinni við þær. Hugmyndin var heldur hrá í
byrjun en eftir smá sannfæringu frá Ellu varð til samtal um
hvernig hlaðvarpið gæti orðið. Síðan eyddu þær heilum degi
í Odda við að undirbúa umsóknina. „Við vorum að drita niður
svörum, því umsóknin er drullulöng, nánast tuttugu síður, og
við höfðum bara einn sólarhring,“ segir Ella. „Svo heyrðum
við í Ástu og fengum hana til að vera leiðbeinandinn
okkar,“ bætir Guðrún við, en það var ekki sjálfsagt að
fá kennara til að leiðbeina verkefninu. Ella minnist á
hvað ferlið var stressandi: „Áður en ég hringdi í Júlíu
og Guðrúnu hafði ég heyrt í fullt af kennurunum,
þessi kennari var veikur, annar kennarinn upptekinn
í öðru verkefni, o.s.frv. Við bjuggumst ekki endilega
við, meira segja eftir að þær höfðu samþykkt þetta, að
við myndum fá kennara. En Ásta, the queen that she
is, var bara yeah baby.“
„Þessi hugmynd spratt upp úr hugmyndavinnunni
sem við höfðum unnið með kennurunum og fleirum í
kynningarnefnd um íslenskuna. Hvernig getum við nálgast
ungt fólk á spennandi og skemmtilegan máta öðruvísi en að
mæta í framhaldsskólana með glærukynningu? Hvernig getum
við látið íslenskunám og allt sem því tengist hljóma spennandi
en ekki of fræðilegt?“ segir Júlía, en tilgangur hlaðvarpsins
er að efla áhuga með því að fjalla um íslensku á mannamáli
á opinberum miðli, þá spjall á jafningjagrundvelli frekar en
fyrirlestur. „Hugmyndin er líka að sýna hvað hægt sé að gera
eftir námið og fá fólk í viðtal,“ segir Guðrún en viðmælendurnir
gætu verið einhverjir sem hafa nýtt íslenskunámið í starfi eða
lífinu. „Það er mun fjölbreyttara en fólki dettur í hug.
Íslenska glæpasagan og unglingaslettur