Mímir - 01.06.2023, Síða 53

Mímir - 01.06.2023, Síða 53
51Mímir 53 - Mímishöfuð eftir því að tónlistarmenn í rapp senunni nefna auð oftast í þeim tilgangi að sýna fram á þrjá mismunandi hluti: 1. Samband milli auðs og virðingu frá gagnstæðu kyni 2. Auður veitir virðingu frá öðrum 3. Auður sem að er táknrænn fyrir að „lifa hinu góða lífi“. Í þriðju niðurstöðu sinni nefnir Kristine að tónlistarmenn í rapp senunni nefna oft hluti eins og dýra bíla, kampavín, skartgripi eða fleiri veraldlega hluti í miklu magni í tónlist sinni. Þessir hlutir eiga að mati Kristine að vera táknrænir fyrir þann lífstíl sem tónlistarmennirnir lifa einnig betur þekkt sem „hið góða líf“. Þannig fjalla tónlistarmennirnir um þessa veraldlegu hluti í þeim tilgangi að gera ljóst fyrir hlustendum þeim góða lífstíl sem þeir lifa. Með rannsóknir Kristine í huga væri hægt að túlka sem svo að Gísli fjalli um ávexti í lögum sínum í sama tilgangi. Á plötunni fjallar Gísli um sömu hluti og þeir tónlistarmenn sem Kristine rannsakaði, þ.e.a.s dýran fatnað, skartgripi og kampavín svo eitthvað sé nefnt. Hér væri því hægt að setja ávexti í sama flokk og þessi umfjöllunarefni þar sem þeir, ásamt þeim hlutum sem voru taldir upp hér áðan sýna þann lífstíl sem Gísli lifir. Þannig má til dæmis túlka sem svo að með línu sinni, „Nýskorin Ananas í Pinas Coladas mar“ sé Gísli að fara frumlegri leið en aðrir tónlistarmenn hafa gert áður til að lýsa lífstíl sínum. Hið sama má segja um aðrar línur Gísla eins og „Veist hvernig þetta er þegar ég kem / þeyttur rjómi og jarðaber“ eða „Ég er frá annari plánetu / súkkulaði rjómi með ávöxtum“. Ávextir eins og ananas eða jarðaber eru þó mjög aðgengilegir fyrir hið hversdagslega fólk ólíkt því sem aðrir tónlistarmenn fjalla um eins og skartgripi eða dýrar flíkur. Gísli setur hinsvegar þessa hluti sem í fyrstu virðast hversdagslegir í samhengi sem veldur því að ávextirnir í textanum birta skýra mynd af hinum dýra lúxus lífstíl sem Gísli lifir eða eins og hann segir sjálfur, „lífstíll kónganna“.

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.