Mímir - 01.06.2023, Side 19

Mímir - 01.06.2023, Side 19
17Mímir 53 - Mímishöfuð „óreglulegt í eig. eint., en það er þar fjár; þó er myndin fjes til, en miklu óvanalegri“. Sú mynd er samt ekki fordæmd eins og nú; í Málfarsbankanum segir: „Eignar fallið er ekki „fés“, með greini „fésins“ […].“ Þótt því fari fjarri að Halldór viðurkenni allar breytingar sem orðið höfðu frá fornmáli sýna dæmin hér að framan að jafnvel harðir málhreinsunarmenn á seinni hluta 19. aldar viðurkenndu – eða gerðu ekki athugasemdir við – ýmsar breytingar sem höfðu orðið frá fornu máli og nú eru taldar rangar en aðeins eldri myndin talin rétt í hverju tilviki. Það táknar auðvitað ekki endilega að tekist hafi að hrekja „nýjungarnar“ úr málinu – flestar lifa enn góðu lífi þrátt fyrir að vera taldar „rangt mál“, nema þágufallið Egli. Sennilega hafa bæði aukin þjóðerniskennd í tengslum við sjálfstæðisbaráttu og breyttur markhópur átt sinn þátt í því að íhaldssamari og einstreng ings legri afstaða virðist hafa verið tekin til ýmissa málbreytinga þegar kom fram á 20. öld. Aldargömul, einstrengingsleg og úrelt viðmið Þótt vissulega hafi verið rekin hörð málhreinsunarstefna í Lærða skólanum á seinni hluta 19. aldar og stílar nemenda leiðréttir miskunnarlaust þarf að hafa í huga að nemendur Halldórs Kr. Friðrikssonar og annarra mál hreins unar manna þar voru komnir af barnsaldri og margir hverjir harðfullorðnir. Því má gera ráð fyrir að málkerfi þeirra hafi verið fullmótað og ekki auðvelt að breyta því. En jafnframt má ætla að þeir hafi haft nægan þroska til að geta lagt sjálfstætt mat á mál og málbreytingar og tekið afstöðu til þeirra. Í stað þess að kveða einfaldlega upp misvel rök studda Salómonsdóma um „rétt“ og „rangt“ hafi kennarar því getað rökrætt ýmis málfarsefni við nem endur, þótt vissulega sé óvíst hvort og þá að hvaða marki það var gert. Á þessum tíma voru barnaskólar fáir og fámennir og skólatíminn stuttur, en með lögum um fræðsluskyldu allra 10- 14 ára barna árið 1907 varð grundvallarbreyting. Skyndilega

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.