Mímir - 01.06.2023, Síða 35
33Mímir 53 - Mímishöfuð
málfræðikennslunnar alveg fram á efsta stig, þ.e. 8., 9. og 10.
bekk. Sjálfsagt er gott að tvinna hana inn í íslenskukennsluna
alla grunnskólagönguna. Þó ætti mest áhersla að vera lögð á
lestrarkennslu, lesskilning (t.d. fremur en leshraða) og ritun.
Hægt væri að leggja fyrir alls kyns fjölbreytt verkefni sem fela
í sér að nemendur öðlist skilning og áhuga á tungumálinu
og átti sig á sköpunarkrafti þess í raun og veru er. Sem dæmi
má nefna verkefni sem snúast um að skrifa smásögur og
ljóð, greina og túlka lagatexta, endurraða ljóðum, búa til
nýyrði og svo mætti lengi telja. Því meira sem nemendur
fá að spreyta sig á tungumálinu, leika sér með það og búa
til eitthvað skapandi úr því, þeim mun áhugasamari verða
þeir. Ef notaðar eru aðferðir sem örva og ýta undir sköpun
nemenda í íslenskukennslu, gætiáhugi fleiri nemenda
kviknað þegar komið er á unglingastig. Þá er líklegra
að nemendur verði móttækilegir fyrir málfræðinni og
þeim flóknu hugtökum sem henni kunna að fylgja.
Þess vegna er hugsanlega betra að málfræðikennsla
hefjist af alvöru á unglingastigi og haldi svo áfram á
framhaldsskólastigi.
Nemandi sem hefur aldrei séð veraldlegan tilgang
í því að leggja sig fram við að ná tökum á málinu, er
ekki líklegur til að vera sérlega móttækilegur fyrir
viðtengingarhætti og afturbeygðum fornöfnum. Þegar
hugtök á borð við þessi koma upp á töflu og kennari ætlast
til að nemendur læri reglurnar á bakvið þau, er hætta á að
margir nemendur hugsi „nei nú er ég alveg hætt/ur að skilja,
ég er svo léleg/ur/t í íslensku,“ og eru á barmi þess að gefast
upp og „hata“ íslensku þar af leiðandi. Þess vegna er kannski
orðið tímabært að endurskoða fyrirkomulag íslenskukennslu,
svo þessi fallegi og mikilvægi menningararfur okkar fái að
halda áfram að þróast og verða sterkari.
Heimildaskrá
Berglind Hrönn Einarsdóttir. (2019). Viðhorf unglinga til íslensku og ensku
[Ritgerð til M.A-prófs í íslenskri málfræði]. Skemman.
https://skemman.is/bitstream/1946/32654/5/Ritger%c3%b0%20BHE.pdf
Mennta- og menningarmálaráðuneyti. (2013). Aðalnámskrá
grunnskóla: Almennur hluti 2011: Greinasvið 2013. Mennta- og
menningarmálaráðuneyti.