Mímir - 01.06.2023, Qupperneq 37

Mímir - 01.06.2023, Qupperneq 37
35Mímir 53 - Mímishöfuð Einnig minnka umsvif íslenskunnar ef önnur tungumál eru taki við hlutverki íslenskunnar sem sameiginlegt samskiptamál flestra hópa og við sem Íslendingar höfum ekki efni á að halda svona stórum hópi utan málsamfélags okkar. Það er kaldhæðnislegt að fólkið sem oft hefur mestar áhyggjur af íslenskunni sé gjarnan það fyrsta til að gagnrýna útlendinga og innflytjendur fyrir “ófullkomna” íslensku, hvað varðar hreim, orðanotkun og ófullkomnar beygingar. Enda er viðhorf Íslendinga gagnvart „ófullkominni“ íslensku stór hluti vandamálsins, þá sérstaklega þegar kemur að íslensku sem er töluð af fólki af erlendum uppruna. Til að bæta stöðu samfélagsins í heild er mikilvægt að sinna tveimur verkefnum. Hið fyrra er að stofnanir, líkt og stjórnvöld, skólar, atvinnurekendur og verkalýðsfélög, bæti aðgengi að íslenskukennslu og úrræðum tengdum henni. Hið seinna, en ekki síðra, er að breyta viðhorfum Íslendinga. Að hvetja fólk til að tala íslensku, að dæma ekki fólk fyrir málfar, leyfa fólki að tala „ófullkomna“ íslensku og byrja öll samtöl á íslensku þangað til beðið er um annað. Fólk notar stundum ensku ef til vill til í góðri trú, telur sig þannig hjálpa viðmælanda og einfalda samskipti. Það gerir hins vegar lítið úr metnaði manneskjunnar sem er að reyna að tala og sýnir að fólk nenni ekki að hjálpa manneskjunni sem er að læra. Oft sendir þetta einnig ómeðvituð (eða meðvituð) skilaboð að þau eigi ekki heima hér, að manneskjan sé ekki hluti af samfélaginu. Ekki er hægt að glíma við vandamálið í heild sinni án þess að leysa þessa tvo þætti. Hér spilar ýmislegt inn í aðgengi að íslenskukennslu. T.d. þeir sem eru efnameiri eiga auðveldara að bera kostnaðinn sem íslenskukennsla felur í sér. Einnig getur tungumálakennsla verið óaðgengileg að því leyti hún er tímafrek. Vinna og umsjón barna og heimilis eru sjálfsögðu sett í forgang. Sú kvöð étur upp mestan þann tíma sem hefði mátt nýta í íslenskunám og það stendur sérstaklega í vegi fyrir konum af erlendum uppruna. Til að tryggja réttindi fólks, aðgengi að samfélaginu og framtíð íslenskunnar er breytinga þörf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.