Læknaneminn - 01.01.2017, Blaðsíða 6
5
Áv
ör
p
og
an
ná
lar
5
Bíómyndir og sjónvarpsþættir gefa oft afar rómantíska
mynd af læknanemum þar sem allir hittast eftir vakt á
barnum og mikil dramatík ríkir á spítalanum. Eflaust hafa
allmargir haft þá mynd í huganum þegar þeir ákváðu að
fara í læknisfræði. Þó náminu fylgi vissulega félagslíf og
jafnvel rómantík þá kemst fólk fljótlega að því að þetta er
ekkert eins og í sjónvarpinu. Það er enginn Dr. House sem
sinnir öllum læknisfræðilegu ráðgátunum og það fer enginn
út í körfubolta í pásunum. Stærsti munurinn er samt sá að
læknanemarnir í sjónvarpinu hafa aldrei fengið tímarit eins
og Læknanemann!
Þetta er hvorki meira né minna en 68. árgangur Lækna
nemans og hann verður veglegri með hverri útgáfu. Fimmta
árið í röð er Læknaneminn fimm stiga vísindatímarit
og því er hann góður vettvangur fyrir læknanema og
lækna sem eru að stíga sín fyrstu skref á vísindaferlinum.
Á hverju ári koma ferskar og skemmtilegar hugmyndir um
efni tímaritsins frá ritstjórn skipaðri fimmta árs nemum.
Forsíður síðustu ára hafa allar verið mjög ólíkar en oft hafa
orðið fyrir valinu ýmis líffæri eða lækningatæki. Við vildum
þó kafa dýpra og völdum því glæsilega vefjafræðimynd.
Grafíska hönnuði tímaritsins leist strax vel á og líkti henni
við fallegt veggfóður eða málverk. Heimspekingurinn
Konfúsíus sagði að málverk væru ljóð án orða og það sama
mætti segja um vefjafræðimyndirnar, svo fallegar eru þær.
Líf læknanemans getur verið flókið. Í þessu tímariti reynum
við að koma inn á allar helstu þarfir hans – dýpka og auka
þekkingu með ritrýndum greinum og fróðleik, hjálpa til við
að svara stóru spurningunni „Hvernig læknir ætlarðu svo
að verða?“, skipuleggja lífið, svo sem ferðalög, barneignir og
hvað ætti að fá sér í kvöldmatinn og síðast en ekki síst að
lífga upp á daginn með góðri skemmtun.
Venjan er að þriðja árs læknanemar sjái um auglýsingasöfnun
fyrir tímaritið. Í heimi fækkandi tímaritaauglýsinga og
vaxandi samfélagsmiðla þá virðist sífellt erfiðara að safna
auglýsingum sem hafa hingað til kostað tímaritið. Ákveðið
var að funda með Félagi læknanema og leita lausna.
Niðurstaðan var sú að fjármagn þyrfti að fá annars staðar
frá. Því biðlum við til lækna að styrkja útgáfuna, með því
að leggja inn á reikning Félags læknanema (sjá bls. 2), svo
áfram verði hægt að gefa út tímaritið. Við erum vongóð um
að læknar muni taka vel í þetta fyrirkomulag sem einnig var
við lýði á árum áður.
Við vonum að þú takir þér frí frá amstri hversdagsins og
njótir þess að lesa þetta skemmtilega, fræðandi og fallega
tímarit. Við viljum þakka öllum sem komu að tímaritinu,
án ykkar hefði þetta verið ómögulegt. Vinnan í kringum
það var bæði krefjandi og skemmtileg og gæti jafnvel verið
fínasta efni í nýjan læknaþátt. Hver veit nema það verði
næsta skref, Læknaneminn á Netflix 2018?
Ávarp ritstjórnar
Glæsibær, Vesturhús, 2. hæð • Álfheimar 74 • 104 Reykjavík
Sími 414 7000 • augljos@augljos.is • www.augljos.is
L A S E R AU G N AÐGE R Ð I R
Verið velkomin í forskoðun, tímapantanir í síma 414 7000
Kynntu þér háskólaafsláttinn
http://www.student.is/afslaettir
Við erum á Facebook
/Augljos