Læknaneminn - 01.01.2017, Side 7

Læknaneminn - 01.01.2017, Side 7
6 Áv ör p og an ná lar 6 Starfsárið 2016­17 hefur verið viðburðaríkt hjá stjórn Félags læknanema. Endurskoðun lækna­ námsins og hugsanleg fjölgun lækna nema hafa verið fyrirferðar­ mikil mál hjá stjórninni á árinu en höfum við unnið að þeim málum í samstarfi við Kennslu­ og fræðslu mála nefnd. Lesa má um fram gang mála í þessum efnum í pistli Hallfríðar, formanns KF. Auk þessa hefur ýmislegt fleira gerst í kennslumálum. Til að mynda hafa verið gerðar breytingar á námskeiði í þverfræðilegri samvinnu í heilbrigðisvísindum en talsverð óánægja hefur verið með námskeiðið síðan það hófst fyrir þremur árum. Nemendur unnu með sviðsforseta Heilbrigðisvísindasviðs að breytingartillögum sem meðal annars fela í sér að flytja námskeiðið framar í námið og breyta efni þess. Hugsunin er þá að nemendur Heilbrigðisvísindasviðs muni hittast einn dag á fyrsta ári þar sem einstaklingar úr hverri grein koma og segja frá hlutverki og störfum hverrar stéttar. Síðari hluti námskeiðsins færi fram á þriðja ári og þá byðist nemendum að velja annað hvort að vinna sjúkdómstilfelli á þverfræðilegan hátt eða að vinna að verkefnum er tengjast nýsköpun eða lýðheilsu með einstaklingum úr öðrum heilbrigðisstéttum. Teljum við að þessar breytingar muni bæta námskeiðið og að valið muni stuðla að því að námskeiðið henti betur hinum ólíku deildum innan Heilbrigðisvísindasviðs. Fara á af stað með þessar breytingar næsta haust með þann hluta sem fer fram á fyrsta ári. Í ár var töluverð aukning á nemendakennslu þar sem nemendur af eldri árum kenndu nemendum af yngri árum. Þetta var annað árið þar sem fram fór kennsla nemenda í lífeðlis­ og lífefnafræði. Þar kenndu nemendur af 5. og 6. ári nemendum af 2. ári aukatíma þar sem farið var í efni er nemendum sem kenndu þótti mikilvægt, áhugavert og skemmtilegt. Þá voru tvær nýjungar, kennsla 4. árs nema í líkamsskoðun fyrir nemendur á 2. ári og kennsla 5. og 6. árs nema í vandamálamiðuðu verkefni í frumulíffræði. Frumulíffræðin er, ólíkt hinum verkefnunum, orðinn hluti af námskeiðinu svo nemendur sem kenndu þar voru skráðir sem aukakennarar og hlutu laun fyrir. Skemmst er frá því að segja að öll nemendakennsla gekk afar vel og mikil ánægja var með hana hjá bæði nemendum og kennurum. Vonum við að hægt sé að efla þennan lið enn frekar á næstu árum. Á vorönn bárust stjórninni ábendingar um að gera ætti breytingar á Súðinni, aðstöðu læknanema á Land­ spítalanum við Hring braut. Þar ætti að skoða hvort hægt væri að skipta upp rýminu og koma upp aðstöðu fyrir deildar lækna. Þetta litum við á sem grafalvarlegt mál þar sem Súðin er gífurlega mikið notuð í kennslu og sem afdrep læknanema. Í raun er Súðin eina lærdóms­ og vinnuaðstaða læknanema á spítalanum og að margra mati eitt það besta við að vera læknanemi á LSH. Höfðum við samband við framkvæmdastjórn LSH og var þeim gert ljóst hversu mikilvæg Súðin er læknanemum. Eftir endurtekin símtöl og tölvupósta höfum við, okkur til mikillar gleði, fengið staðfest að hætt hafi verið við þessi áform og deildarlæknar hafi fengið aðra aðstöðu. Á árinu var tekin ákvörðun varðandi breytingar á alþjóða­ samskiptum við alþjóðafélagasamtök læknanema, IFMSA (International Federation of Medical Students‘ Associations). Í stuttu máli þá á að breyta samskiptunum á þann hátt að stjórn FL verði regnhlífarsamtök allra undir­ og samstarfs félaga FL innan IFMSA þannig að fleiri félög en Alþjóða nefnd geta tekið þátt í þessum samskiptum. Lesa má nánar um þessar breytingar í pistli Helgu Þórunnar, formanns Alþjóðanefndar. Að lokum má nefna að í byrjun árs gáfum við út umsögn um nýtt frumvarp um LÍN og funduðum í kjölfarið með allsherjar­ og menntamálanefnd Alþingis. Bentum við þar á annmarka á frumvarpinu er tengdust nemendum í læknisfræði sérstaklega. Eitt atriðið sem einnig er til staðar í núverandi lögum varðar fjölda mánaða sem námslánum er úthlutað fyrir. Þar bentum við á að námsár í læknisfræði væri lengra en 9 mánuðir (það er allt frá 9,25 mánuðum upp að 9,75 mánuðum) og því værum við tekjulaus þann tíma og gætum auk þess unnið styttra á sumrin. Annað atriði sem við bentum á er að stytting á lánshæfum námsferli kæmi niður á mörgum nemendum í læknisfræði sem þurfa endurtekið að gangast undir inntökupróf í læknisfræði og taka annað háskólanám á meðan. Að lokum bentum við á að í nýja frumvarpinu var ekki gert ráð fyrir sveigjanleika varðandi frestun á greiðslu námslána þegar gengist er undir ólánshæft nám eins og sérnám í læknisfræði. Það sem var áhugavert við þetta ferli var áminningin um hvernig félagið getur haft bein samskipti við stjórnvöld og komið áleiðis skilaboðum varðandi hagsmuni læknanema. Vil ég fyrir hönd stjórnar FL þakka félögum FL fyrir gott starfsár og óska öllum velfarnaðar á því næsta. Annáll Félags læknanema Valgerður Bjarnadóttir formaður Félags læknanema 2016-2017
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.