Læknaneminn


Læknaneminn - 01.01.2017, Qupperneq 8

Læknaneminn - 01.01.2017, Qupperneq 8
7 Áv ör p og an ná lar 7 Annálar undirfélaga 2016 2017 Enn eitt frábært ár að baki! Félagslíf læknanema er að verða komið í fastar skorður en það er líka engin ástæða til að breyta því sem gengur svona vel. Skólaárið hófst með ný­ nema ferðinni en í ár var metmæting nýnema, heil 44 stykki. Farið var í Borgarfjörðinn þar sem við grilluðum pylsur og bulsur, kynntum félagslífið og hristum hópinn saman. Frábær ferð þar sem allir skemmtu sér langt fram á nótt. Spiritusvígslan var svo í kjölfarið þar sem eldri árin buðu 1. árið velkomið og myndband frá nýnemaferðinni var frumsýnt. Þó að spírinn sé orðinn að fjarlægri minningu og horfinn úr þessari hefð er kvöldið alltaf jafn skemmtilegt. Vísindaferðir vetrarins voru einstaklega áhuga­ verðar og fjölbreyttar. Boðið var upp á ferð á nánast hverjum föstudegi og mátti sjá ýmsar nýjungar, t.d. Sjúkratryggingar Íslands, Nox Medical og Zymetech. Allt frábærar ferðir og þessar gömlu góðu stóðu einnig fyrir sínu. Í ár var annað snið á Halloween en undanfarið, þar sem allar deildir Heilbrigðisvísindasviðs slógu saman í eitt stórt partý. Kvöldið hófst með búningavísindaferð í Arion banka og þaðan ferjuðu rútur liðið á Hendrix í Grafarvogi. Við veittum harða samkeppni í búninga­ keppninni en það var sjúkraþjálfaranemi sem vann verðlaunin í ár. Við tökum þetta bara á næsta ári! Í nóvember voru hinar veglegu stelpu­ og stráka vísindaferðir haldnar með pompi og prakt. Stelpurnar heimsóttu Kilroy en strákarnir kíktu til Eskimo Travel svo enginn slapp undan ferða þránni. Allir skemmtu sér samt konung lega og stóð kútur á Kiki fyrir sínu eins og vanalega! Fótboltamótið var einnig haldið í nóvember og það er alltaf jafngaman að sjá keppnisskapið sem brýst fram. Strákarnir á 6. ári sigruðu í karla flokki eftir grjótharða baráttu við strákana á 5. ári. Stelpurnar á 2. ári unnu kvennaflokkinn, enda eina liðið. Þær voru samt vel að gullinu komnar því þær kepptu við öll strákaliðin og áttu fyrsta mark mótsins. Hin árlega skíðaferð var farin í byrjun janúar með hjúkrunarfræðinemum. Veðurguðirnir sáu þó til þess að ferðin breyttist snarlega í skauta ferð. Allir skemmtu sér þó prýðilega enda skíðin ekki endilega aðalmálið. Auk skautanna var farið í vísindaferð í Kalda, kíkt á mannlífið á Pósthúsbarnum og sundlaugin stóð fyrir sínu. Árshátíðin var haldin 11. mars í Kórnum í Kópa vogi enda dugar ekkert minna fyrir okkur. Veislu höldin heppnuðust einstaklega vel og hafa myndböndin aldrei verið jafn metnaðarfull. Baráttan um Lúkasinn var hnífjöfn en krakkarnir á 2. ári báru sigur úr býtum með einu atkvæði. BandAids spilaði svo fyrir dansi langt fram á nótt þangað til rútur ferjuðu fólk í bæinn. Síðast en ekki síst voru Læknaleikarnir haldnir 21. apríl í Hressingarskálanum. Af sjö liðum voru Túrbínurnar á 1. ári hlutskarpastar og hlutu farandbikarinn í ár. Það er heiður að fá að skipuleggja skemmtanalíf fyrir jafn hresst og skemmtilegt fólk og lækna­ nema. Mig langar að þakka öllum sem tóku þátt og gerðu þennan vetur að þeirri snilld sem hann var. Að lokum vil ég nýta tækifærið og þakka snilling unum í Fulltrúaráði, Oddnýju Brattberg Gunnarsdóttur og Thelmu Kristinsdóttur á 1. ári, Helgu Líf Káradóttur og Sigrúnu Jóns dóttur á 2. ári, Önnu Guðlaugu Gunnars­ dóttur á 4. ári, Valgerði Bjarnadóttur á 5. ári og Finnboga Ómarssyni á 6. ári fyrir frábært samstarf, góða skipulagningu og vel heppnaða dagskrá. Fulltrúaráð Signý Rut Kristjánsdóttir formaður Fulltrúaráðs
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.