Læknaneminn - 01.01.2017, Blaðsíða 15
Ri
trý
nt
ef
ni
1414
Inngangur
Þunglyndi er geðsjúkdómur sem getur lagst á alla
óháð aldri og kyni. Embætti Landlæknis áætlar að
á Íslandi þjáist um 1215 þúsund manns af þung
lyndi á hverjum tíma1. Árið 2010 var þunglyndi
í öðru sæti yfir helstu orsakir færniskerðingar
einstaklinga2 og samfélagslegur kostnaður vegna
þunglyndis er hár3,4. Það getur verið erfitt að
greina þunglyndi frá eðlilegum viðbrögðum við áföllum og erfiðleikum.
Fyrstu kvartanir við lækni eru oft á tíðum óljósar, svo sem þreyta, slen
eða verkir. Það er því mikilvægt að spyrja um an dlega líðan, álag og
áhyggjur. Ógreint þunglyndi leiðir til óþarfa þján ingar og hömlunar þar
sem til eru gagnreyndar og árangurs ríkar með ferðir. Í þessari yfirlitsgrein
verður megin áhersla lögð á þunglyndi hjá fullorðnum.
Faraldsfræði
Í Bandaríkjunum hefur algengi þunglyndis aukist á 20 ára tímabili og
stundaralgengi (e. point prevalence) tvöfaldast5. Í töflu I má sjá yfirlit yfir
faraldsfræði þunglyndis. Í rannsókn Tómasar Helgasonar á Íslendingum
frá árinu 1964 var áætlað að lífsalgengi lyndisraskana (e. mood disorders)
væri um 15% hjá konum og 10% hjá körlum6. Í nýlegri evrópskri
heilsufarsrannsókn var Ísland í fjórða sæti yfir fjölda einstaklinga með
þunglyndiseinkenni7. Meirihluti veikist af þunglyndi snemma á ævinni
á aldrinum 1224 ára og minnihluti eftir 65 ára aldur8. Fram kemur í
rannsókn Hallgríms Magnússonar frá árinu 1989 að algengi þunglyndis
var á á bilinu 89% hjá einstaklingum 8087 ára á Íslandi9.
Orsakir
Margvíslegar orsakir geta legið að baki þunglyndi en yfirleitt er um að
ræða samspil erfða og umhverfisþátta. Zubin og Spring settu fram árið
1977 svokallað viðkvæmnistreitu líkan (e. stress-vulnerability model)16.
Það líkan hefur verið notað til að útskýra orsakir geðsjúkdóma. Kenningin
byggir á þeirri hugmynd að fólk sé misnæmt og hafi mismikið álagsþol.
Þannig komi geðröskun fram vegna meðfæddrar erfðatilhneigingar
og streituvaldandi aðstæðna. Góð skilyrði geta verndað fólk fyrir
undirliggjandi erfðatilhneigingu og eins geta slæm skilyrði ýtt undir
að geðröskun komi fram. Einnig má nefna hið lífsálfélagslega líkan
(e. biopsychosocial model) þar sem gert er ráð fyrir að orsök sjúkdóma
stafi af samspili líffræðilegra, sálrænna og félagslegra þátta. Sullivan
og félagar benda á að vissulega er sterkur erfðaþáttur í þunglyndi17 en
mismunandi lífsreynsla á einnig þátt18.
Erfðir
Lyndisraskanir liggja í ættum17. Áhætta á að fá þunglyndi tvö til þre
faldast ef fyrstu gráðu ættingi er með þunglyndi1923. Tvíbura rannsóknir
sýna 40% til 50% samræmi hjá eineggja tvíburum17,2429. Erfða tilhneiging
fyrir þunglyndi og geðhvarfasjúkdómi (e. bipolar disorder) virðist skarast,
þannig að ættingjar einstaklinga með geðhvörf eru í aukinni hættu
bæði á þunglyndi og geðhvarfasjúkdómi23. Ef annað foreldri er með
lyndisröskun eru 1025% líkur á að barn veikist og séu báðir foreldrar
veikir nær tvöfaldast líkurnar30. Ættleiðingarrannsóknir hafa ekki
verið margar en heilt á litið styðja þær þátt erfða í þunglyndi3133. Hafi
líffræðilegir foreldrar þunglyndi veikjast börn þeirra frekar af þunglyndi
þó fósturforeldrar þeirra séu ekki með sjúkdóminn.
Óljóst er með hvaða hætti sjúkdómurinn erfist13,34,35. Líklega er um
samspil margra gena að ræða frekar en eitt ákveðið gen36. Helst hafa
genarannsóknir beinst að fjölbreytileika í geni sem skráir fyrir serótónín
flutningsprótíni. Það virðist tengjast viðkvæmni einstaklinga fyrir þróun
þunglyndis 37. Tvö afbrigði af stýriröð (e. promoter region) gensins eru til,
annars vegar stutt (S) og hins vegar löng (L). Lendi einstaklingar með
S afbrigði gensins í þremur eða fleiri áföllum þrefaldast áhætta þeirra
fyrir þunglyndi, á meðan það hefur ekki áhættuaukningu í för með sér
meðal þeirra sem hafa L afbrigði gensins38.
Félagslegar aðstæður og umhverfi
Áföll og erfiðleikar í æsku geta verið áhættuþættir fyrir þróun þung
lyndis síðar meir39,40. Má nefna sem dæmi mikla neikvæða gagnrýni
í uppeldi, að missa foreldri sitt ungur36, kynferðisofbeldi og vanrækslu41,42.
Slík lífsreynsla hefur áhrif á sjálfstraust og sjálfsmat einstaklinga. Einnig
hefur mikil kvíðahneigð (e. neuroticism) sterkt forspárgildi fyrir þróun
þunglyndis42,43.
Þunglyndi
Guðrún Birna Jakobsdóttir, fimmta árs læknanemi 2016-2017
Ísafold Helgadóttir, sérfræðingur í geðlækningum
Tafla I. Faraldsfræði þunglyndis.
Karlar:konur1013 1:2
Lífsalgengi14 12,8% (8,9% hjá körlum og 16,5%
hjá konum)
12 mánaða algengi14 3,9% (2,6% hjá körlum og 5,0%
hjá konum)
Tvíburahlutfall
(eineggja:tvíeggja)15 44%:20%
Yfirlitsgrein