Læknaneminn - 01.01.2017, Page 16

Læknaneminn - 01.01.2017, Page 16
Ri trý nt ef ni 15 Hjá fullorðnum eru ýmsir þættir sem geta aukið áhættu á þunglyndi, svo sem atvinnuleysi, léleg félags­ eða efnahagsleg staða og félagsleg einangrun36,44. Líffræðilegar orsakir Ýmsir líkamlegir sjúkdómar geta verið þess valdandi að fólk veikist af þunglyndi45. Til dæmis getur kalkvakaóhóf (e. hyperparathyroidism), heila­ og mænusigg (e. multiple sclerosis), Parkinson sjúkdómur, heila­ blóðfall, vanvirkur skjaldkirtill og Cushing heilkenni beint valdið þung­ lyndi36. Þungaðar konur og nýbakaðar mæður geta fengið þunglyndi og er þá talað um fæðingarþunglyndi. Langvarandi líkamlegur sársauki getur ýtt undir þunglyndi og aukið á sjálfsvígshættu36. Sum lyf geta ýtt undir þunglyndi, eins og sykursterar, ísótretínóíð, getnaðarvarnarpillan, blóðþrýstings­ og kólesteróllækkandi lyf46. Rannsóknir hafa einnig sýnt tengsl á milli D­vítamínskorts og þunglyndis47. Taugalífeðlisfræðilegar orsakir Þunglyndi má að hluta til rekja til truflunar í taugalíffræðilegum kerfum. Í mónóamín kenningu Schildkraut frá árinu 1965 er þunglyndi talið stafa af skorti á mónóamín taugaboðefnum, það er noradrenalíni, serótóníni og dópamíni. Rökin fyrir því voru meðal annars að reserpín sem er gamalt blóðþrýstingslyf tæmir katekólamínbirgðir tauga og veldur þunglyndi48 ásamt því að flest þunglyndislyf auka á magn serótóníns og noradrenalíns49. Jafnframt má sýna fram á minnkað magn amínósýrunnar trýptófans (forveraefni serótóníns) í blóðvökva þunglyndra og minna magn umbrotsefnis dópamíns í heila­ og mænuvökva þunglyndra. Einnig mælist minna magn umbrotsefnis serótóníns í heila­ og mænuvökva þeirra sem framið hafa sjálfvíg36. Síðar hefur komið í ljós að önnur og fleiri boðefni koma við sögu í meingerð þunglyndis, svo sem glútamat, gamma­amínósmjörsýra (GABA)50 og asetýlkólín51. Rannsóknir hafa einnig beinst að starfsemi heiladinguls­undirstúku­ nýrnahettu öxulsins (e. hypothalamic-pituitary-adrenal, HPA axis). Virkjun HPA­öxuls er eðlislægt viðbragð við streitu og álagi. Hjá þunglyndum getur verið um að ræða ofvirkjun á þessu kerfi með ofseytingu streituhormónsins kortisóls52­57. Einkenni og teikn Þunglyndi er afar misleitur sjúkdómur og einkenni margvísleg. Minnisregluna DIE SPASS SIC má nota til að auðvelda sér að muna einkenni þunglyndis út frá greiningarskilmerkjum ICD­1058 (tafla II). Kjarnaeinkenni Lækkað geðslag, áhuga- og gleðileysi og þreyta eða orkuleysi eru svo­ kölluð kjarnaeinkenni þunglyndis og önnur einkenni viðbótareinkenni. Geðslagið breytist lítið í grunninn frá degi til dags þó vissulega geti verið einhver dægursveifla í líðan þunglyndra59. Sumir sjúklingar geta lýst tómleika eða dapurleika en aðrir reiði eða pirringi59,60. Með áhuga­ og gleðileysi er átt við að viðkomandi njóti ekki lengur þess sem áður vakti honum gleði og ánægju61. Þreyta eða orkuleysi getur verið fyrsta einkenni þunglyndis62. Huglæg einkenni Lækkað sjálfsmat er algengt hjá þunglyndum samhliða verkkvíða og framtaksleysi59. Þunglyndir lýsa gjarnan vonleysi um lífið og tilveruna og upplifa sjálfa sig sem byrði. Þunglyndir eiga það til að einangra sig og draga úr félagslegu samneyti við annað fólk. Það er mikilvægt að spyrja alltaf út í sjálfsvígshugsanir og hugsanir um dauðann hjá þung­ lyndum59. Auk þess geta einbeitingartruflanir eða athyglisbrestur gert vart við sig. Hugsun getur orðið hægari sem kemur fram í hægara tali og bið í tilsvörum. Mikil sektarkennd getur gegnsýrt hugsun fólks. Oft sér fólk misgjörðir sínar mun verr en þær eru í raun. Sektarkenndin getur orðið svo yfirdrifin að hún verði að fastmótaðri ranghugmynd59. Líkamleg einkenni Líkamleg einkenni geta fylgt þunglyndi, svo sem breytt matarlyst. Annað hvort lýsir fólk minnkaðri matarlyst eða sem er sjaldgæfara aukinni matarlyst. Kynhvöt getur minnkað. Hægðatregða og munnþurrkur geta verið einkenni sem fólk kvartar yfir59. Þunglyndi getur haft áhrif á svefn fólks, þá er oftast um að ræða árvöku. Með árvöku er átt við að viðkomandi vaknar snemma á morgnana og nær ekki að sofna aftur59. Ef um svefntruflun ræðir er mikilvægt að greina af hvaða toga hún er, hvort um ræði erfiðleika við að festa svefn, rofinn svefn, árvöku eða óendurnærandi svefn. Tregða (e. psychomotor retardation) eða hægagangur getur verið einkenni þunglyndis en einnig getur óróleiki eða eirðarleysi (e. agitation) fylgt þunglyndi. Þegar þunglyndi er orðið alvarlegt þá getur fólk orðið stjarft (e. stuporous state)59. Geðrofseinkenni Við mat á geðrofseinkennum er mikilvægt að hafa í huga menningar­ legan bakgrunn viðkomandi62. Um fimmtungur þunglyndra fá geðrofs­ einkenni en þau geta auk ranghugmynda verið á formi ofskynjana og hugsanatruflana. Auk sektarranghugmynda geta ranghugmyndir snúið að vanheilsu, fátækt eða gereyðingarblekkingu (e. nihilism). Nihilist ískar ranghugmyndir lýsa sér til dæmis þannig að fólk upplifi að það vanti á það útlim, að meltingarvegurinn eða líkaminn allur sé að eyðast upp. Líkamlegar ranghugmyndir væru til dæmis að viðkomandi teldi sig vera eyðnismitaðan. Ef um ofheyrnir er að ræða eru raddirnar yfirleitt í 2. persónu59. Yfirleitt eru geðrofseinkenni í samræmi við geðslag sjúklings (e. mood congruent)59. Uppvinnsla og greining Við mat á þunglyndi sem og öðrum geðröskunum er mikilvægt að byrja á því að taka góða sögu. Sagan fæst yfirleitt hjá sjúklingi sjálfum en þunglyndi getur verið það alvarlegt að sjúklingurinn á erfitt með að tjá sig. Þarf þá að fá sögu frá einhverjum nákomnum. Í sögutöku Tafla II. Einkenni þunglyndis sett upp í minnisregluna DIE SPASS SIC. DIE SPASS SIC Þýðing Depressed mood Lækkað geðslag lack of Interest Áhuga­ og gleðileysi lack of Energy Þreyta, orkuleysi Self­esteem Lækkað sjálfsmat Pessimism/hopelessness Vonleysi Appetite Breytt matarlyst Sleep disturbance Svefntruflanir Suicidal thoughts Sjálfsvígshugsanir Social interactions Minnkuð félagstengsl, einangrun Ideas of guilt Sektarkennd reduced Concentration Einbeitingartruflun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.