Læknaneminn


Læknaneminn - 01.01.2017, Qupperneq 26

Læknaneminn - 01.01.2017, Qupperneq 26
Ri trý nt ef ni 25 bráðum slímhimnubólgum af völdum baktería en stundum getur verið erfitt að greina á milli slímhimnubólgu af völdum veiru og bakteríu. Sýnt hefur verið fram á í rannsóknum að sýklalyfjagjöf getur skilað skjótari bata, minni tíma frá vinnu og dregið úr fylgikvillum10,15. Þó ber að taka fram að stórar safngreiningar (e. meta analysis) hafa sýnt fram á að slímhimnubólgur af völdum baktería ganga oftast yfir án inngripa og alvarlegir fylgikvillar eru afar sjaldgæfir10,16–18. Þannig mætti í mörgum tilvikum hugleiða varfærna meðferð (e. conservative) sérstaklega hjá sjúklingum án annarra undirliggjandi áhættuþátta. Jafnframt eru læknar oft hikandi við að gefa stoðmeðferð sem miðar að því að lina einkenni slímhimnubólgu líkt og gervitár og kalda bakstra. Því er full ástæða til að minna á mikilvægi þess að hugsa áður en sýklalyfjum er beitt og beita frekar aðferðum til að hindra útbreiðslu sýkingarinnar með fræðslu og lina einkenni sjúklings. Í þeim minnihluta tilvika þar sem ástæða er til staðbundinnar sýklalyfjameðferðar ætti að huga að almennu sýklalyfjanæmi og hvaða lyf er hagkvæmast fyrir sjúklinginn þar sem stórar rannsóknir hafa ekki sýnt fram á að ákveðin sýklalyf séu betri en önnur19,20. Þó ber að hafa í huga að þrátt fyrir að flestar þessara sýkinga batni sjálfkrafa getur verið óþægilegt fyrir sjúkling að hafa viðvarandi sýkingu. Þannig leita flestir meðferðar á Íslandi. Í þeim tilvikum þar sem ræktunarsvar liggur ekki fyrir er rétt að nota breiðvirk sýklalyf á borð við klóramfeníkól augnsmyrsl (Chloromycetin®) en hafi ræktun sýnt fram á gram jákvæða bakteríu eða ef um væga sýkingu er að ræða má gjarnan nota augndropa sem innihalda fúsidínsýru (Fucithalmic®). Í þeim tilvikum þar sem gram neikvæð baktería ræktast er kjörlyfið almennt gentamícín augndropar eða önnur lyf með gram neikvæða virkni. Í seinni tíð hafa sífellt fleiri breiðvirk lyf komið á markaðinn, til dæmis levofloxacín (Oftaquix®) sem verka bæði á gram jákvæðar og neikvæðar bakteríur. Almennt ætti þó að fara sparlega með þessi lyf en þau eru meðal annars ein af kjörlyfjum gegn sýkingum af völdum N. gonorrhoea. Í þeim tilvikum þar sem ekki sést neinn bati á sýkingu eftir viku meðhöndlun ætti að vísa viðkomandi sjúklingi til augnlæknis8. Þegar sjúklingur hefur ekki svarað hefðbundinni sýklalyfjameðferð ættu læknar að muna eftir sýkingum af völdum klamydíu (lat. Chlamydia trachomatis)10. Tvær mismunandi gerðir af klamydíusýkingum í auga þekkjast og ræðst það af sermisgerð bakteríunnar um hvora gerðina er að ræða21,22. Þessar sýkingar eru frekar óalgengar en eru engu að síður ein af meginorsökum blindu í vanþróaðri ríkjum heimsins23. Á Vesturlöndum sjást frekar slímhimnubólgur í auga af völdum hefðbundinnar klamydíusýkingar sem smitast við kynlíf (e. inclusion chlamydial conjunctivitis). Þessir sjúklingar lýsa oft langvinnri sýkingu sem hefur staðið yfir í meira en þrjár til fjórar vikur. Helsti áhættuhópurinn eru kynferðislega virkir unglingar en þó má ekki gleyma að ungabörn geta smitast í fæðingu. Algengast er að bakterían berist í augað frá kynfærasvæði sýkts einstaklings. Greining er staðfest með stroki og kjarnsýrumögnun. Meðferð felst yfirleitt í gjöf á staðbundnum azitrómýsín augndropum (Azyter®) auk azitrómýsín sýklalyfjameðferðar um munn. Þar sem sterkar líkur eru á kynfærasýkingu samhliða ætti að senda viðkomandi í uppvinnslu á göngudeild húð­ og kynsjúkdóma. Jafnframt ætti að meðhöndla alla nýbura með klamydíuaugnsýkingu með kerfisbundnu erýtrómýcín (Ery­Max®) vegna hættu á klamydíu lungnabólgu3,21,22,24. Hin gerðin af klamydíusýkingu sem getur lagst á augað hefur verið nefnd á íslensku augnyrja (e. trachoma) en þekkist einnig undir heitinu „egypskt augnkvef“. Talið er að augnyrja sé einn af elstu þekktu sjúkdómum mannsins en í heimildum frá 2700 árum fyrir Krist er minnst á sjúkdóminn25. Í vanþróaðri ríkjum heimsins eru þessar sýkingar meðal algengustu orsaka blindu sem koma mætti í veg fyrir. Sýkingin breiðist út með beinum og óbeinum smitleiðum svo sem frá móður til barns, með flugum og sýktum fötum. Helsti áhættuþátturinn fyrir smiti er lítið hreinlæti, þröng búskilyrði og ónógt aðgengi að hreinu vatni. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni búa yfir 200 milljónir manna í 42 löndum á svæðum þar sem augnyrja er landlæg og telur hún að yfir 1,9 milljón manna séu blindir eða með mikla sjónskerðingu af völdum sýkingarinnar26. Sýkingin veldur langvinnri hnútóttri (e. follicular) slímhimnubólgu sem með tímanum leiðir til örmyndunar á augnlokunum. Þessi örmyndun getur valdið því að það lokast fyrir tárakirtla og viðvarandi augnþurrkur kemur fram (mynd 4). Jafnframt getur umrædd örmyndun valdið því að augnlokin fara smám saman að snúa inn (e. entropion) og augnhárin í átt að hornhimnunni (e. trichiasis). Viðvarandi nudd augnháranna við hornhimnuna getur með tímanum leitt til örmyndunar, sjóntaps og blindu27. Slímhimnubólga af völdum ofnæmis Sjúklingar sem þjást af slímhimnubólgum af völdum undirliggjandi ofnæmis kvarta undan roða í augum og glærri eða hvítri útferð samhliða mikilli kláðatilfinningu í og í kringum augu. Við skoðun má sjá einkennandi brúnleita bauga í kringum augun (e. allergic shiners, raccoon eyes). Þessir sjúklingar eru oft á tíðum með sögu um árstíðabundið ofnæmi en samhliða ofangreindum einkennum er gjarnan einnig saga um stíflað nef, kvef og/eða hósta. Jafnframt hafa ofnæmistengdar slímhimnubólgur í augum verið tengdar við aðra ofnæmissjúkdóma, til dæmis nefslímubólgu, exem og astma28. Birtingarmynd á ofnæmistengdum slímhimnubólgum er fjölbreytileg og skiptast þær í nokkra undirflokka, sem tengjast þó allir týpu 1 ofnæmi (e. type 1 hypersensitivity). Algengasti undirflokkur þeirra er árstíðabundin ofnæmistengd slímhimnubólga (e. seasonal allgergic conjunctivitis) sem einkennist af mildum einkennum á vorin, sumrin og/eða haustin í tengslum við frjókorn í umhverfinu. Önnur algeng tegund er fjölær ofnæmistengd slímhimnubólga (e. perennial allergic conjunctivitis) en hún kemur allt árið um kring eftir útsetningu við ofnæmisvald á borð við dýr, myglu eða rykmaura. Þessar tvær tegundir af ofnæmistengdri slímhimnubólgu eiga það sameiginlegt að koma brátt en valda ekki varanlegum skaða. Sjaldgæfari og alvarlegri tegundir af ofnæmistengdum slímhimnu­ bólgum eru vorslímhimnubólga (e. vernal keratoconjunctivitis), atópísk horn himnu­ og slímhimn u bólga (e. atopic keratoconjunctivitis), slím himnu bólga af völdum útsetningar við snertilinsur (e. contact allergic conjunctivitis) og stórtotu slímhimnu bólga (e. giant papillary conjunctivitis). Þessar tegundir eiga það sameiginlegt að vera langvinnari, erfiðari í meðhöndlun og valda varanlegum skaða ef ekki er brugðist rétt við29. Greining á ofnæmistengdri slímhimnubólgu er fyrst og fremst klínísk vegna einkennandi sögu sjúklinga. Í þeim tilvikum þar sem hinn almenni læknir telur sjúkling vera með bráða ofnæmistengda slímhimnubólgu ætti honum að vera óhætt að prófa sig áfram með viðeigandi meðferð. Fyrsta meðferð við slímhimnubólgu á grunni ofnæmis byggist á því að greina líklegan ofnæmisvald, minnka útsetningu fyrir honum og hvetja til notkunar á gervitárum og köldum bökstrum. Í mörgum tilvikum getur þurft að grípa til lyfjameðferðar sem upphaflega felur í sér gjöf á staðbundnum andhistamín augndropum á borð við levókabastín (Livostin®) og/eða mastfrumu stöðgandi augndropum líkt og ólópatadín (Opatanol®). Í erfiðari tilvikum þar sem staðbundin meðferð hefur ekki skilað tilætluðum árangri má prófa gjöf á kerfisbundnum histamín H1 viðtakahindrum og að lokum mætti hugleiða afnæmingu29,30. Þegar grunur er um langvinnt ástand ætti hinn almenni læknir að vísa viðkomandi sjúklingi til augnlæknis. Rauð flögg við uppvinnslu á ofnæmistengdri slímhimnubólgu eru meðal annars að engin árstíðasveifla er til staðar, ofnæmisvaldur er ekki þekktur og/eða ef
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.